Sjá tölfræði leiksins
Fylkir - Akureyri 23-15 (11-9) N1 deild kvenna Fylkishöll 3. nóvember 2007 klukkan: 16.15 Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Valgeir Egill Ómarsson
Umfjöllun Þórsteina gerði 6 mörk í tapi gegn Fylki5. nóvember 2007 - BHB skrifarMeistaraflokkur kvenna tapaði gegn Fylki (uppfært) Kvennalið Akureyrar tapaði á laugardaginn gegn Fylki. Mikið jafnræði var með liðunum framan af en slök markvarsla varð Akureyri að falli að lokum og Fylkir sigraði 23-15. Hálfleikstölur voru 11-9 fyrir Fylki. Meistaraflokkur kvenna spilaði gegn Fylki núna á laugardaginn fyrir sunnan. Því miður náðust engin stig í hús í þetta skiptið en vonandi fer það nú að detta fyrir okkur. Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á fjórðu mínútu og það voru Fylkisstúlkur sem að hófu leikinn. Akureyri komst yfir eftir um sjö mínútna leik, en það var í fyrsta og eina skiptið sem það gerðist. Fylkisstúlkur leiddu í hálfleik eftir jafnan leik 11-9. Seinni hálfleikur byrjaði á marki frá okkar stelpum en þar á eftir kom afar slæmur kafli sem gerði út um leikinn. Ekkert mark kom frá stelpunum í um korter og við skoruðum einungis 6 mörk í öllum seinni hálfleik á móti 12 hjá Fylki. Vörnin stóð sig ágætlega og þegar samskiptin voru í lagi stoppuðu þær Fylkisstúlkur auðveldlega. Sóknir liðsins endaðu allt of oft á lélegu skoti eða mjög góðri markvörslu hjá Jelenu Jocanovic í marki Fylkis.
Tvö mörk voru dæmd af Auði þegar dómarinn flautaði of fljótt.Mörk: Steina 6 (4) Jóhanna 2 Monika 2 Arna 2 Anna 1 Inga Dís 1 Ester 1Gangur leiksins Fyrri hálfleikur: 1-0 1-2 2-2 2-3 6-3 6-4 8-4 8-5 9-5 9-8 10-8 10-9 11-9Seinni hálfleikur: 11-10 12-10 12-11 15-11 15-12 17-12 17-13 20-13 20-14 21-14 21-15 23-15Eftirfarandi er tekið af handbolti.is Fylkir vann Akureyri Fylkir vann Akureyri á heimavelli 23-15 í N1 deild kvenna. Staðan í hálfleik var 11-9 fyrir Fylki. Jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleik en Fylkir var ávallt skrefi á undan Akureyri. Staðan í hálfleik var 11-9 fyrir hálfleik. Í upphafi seinni hálfleik var enn sama baráttan í leiknum og það var ekki fyrr en um miðjan seinni hálfleik sem Fylkir náði yfirhöndinni og náði að innbyrða góðan sigur 23-15. Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari Fylkis, var ánægð með sigur sinna stelpna. Hún sagði samt sem áður að þetta hefði verið erfið fæðing og sóknarleikur liðsins hefði ekki verið upp á marga fiska. Vörnin og markvarslan hefðu skilað þessum stigum í hús. Jafnframt sagði hún að það hefði verið gott að fá þessi tvö stig í hús. Markaskorarar Fylkis voru: Sunna María Einarsdóttir 7, Elizabeta Kowal 4, Natasha Damljanovic 4, Sunna Jónsdóttir 3, Hildur Sif Pálmarsdóttir 2, Hanna Rut Sigurjónsdóttir 1, Elín Helga Jónsdóttir 1 og Nataly Valencia 1. Jelana Jovanovic varði 20 skot og Sunneva Erlingsdóttir varði 1 skot. Markaskorarar Akureyrar voru: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 6, Monika Rutkowska 2, Jóhanna Tryggvadóttir 2, Arna V. Erlingsdóttir 2, Ester Óskarsdóttir 1, Anna T. Morales 1 og Inga Dís Sigurðardóttir 1. Emilía Sigmarsdóttir varði 4 skot og Lovísa O. Eyvindsdóttir 3. Dómarar voru þeir Þorlákur Kjartansson og Valgeir Ómarsson. Áhorfendur voru tæpir 100.
Tengdar fréttir Hvað gera Ester og stöllur í dag3. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarMeistaraflokkur kvenna heimsækir Fylki í dag Meistaraflokkur kvenna heldur suður yfir heiðar í dag og mætir Fylki í N1 deildinni. Leikurinn í dag hefst klukkan 16:15 og fer fram í Fylkishöllinni. Staða liðanna í deildinni er ekki ósvipuð og ekki spurning að stelpurnar eiga góða möguleika í dag. Það er því ástæða til að hvetja norðanmenn sem eru staddir á Stór-Reykjavíkursvæðinu til að kíkja á leikinn í dag.
Til baka