Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Tengdar fréttir
Það gæti orðið erfiður róður fyrir stelpurnar í dag
8. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Meistaraflokkur kvenna mætir Fram í dag Í dag laugardag mætir meistaraflokkur kvenna sterku liði Framara á heimavelli þeirra í Safamýrinni. Leikurinn hefst klukkan 14:00 og má búast við erfiðum leik þar sem Framstúlkur tróna nú sem stendur í efsta sæti N1-deildarinnar. Liðin hafa mæst þrisvar í vetur, tvisvar í deildinni og einnig mættust þau í bikarkeppninni. Síðasti leikur þeirra var hér á Akureyri og þá unnu Framarar með átta marka mun þannig að það er verðugt verkefni fyrir stelpurnar að gera betur að þessu sinni.