Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Jafntefli 24-24 í dramatískum leik hjá Haukum og Akureyri - Akureyri Handboltafélag
14. október 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Haukar - Akureyri sýndur á Greifanum
Akureyrarliðið flýgur suður í dag og leikur við Hauka í Hafnarfirði. Ljóst er að tveir jaxlar í Akureyrarliðinu eru forfallaðir vegna veikinda en það eru þeir Hörður Fannar Sigþórsson og Guðlaugur Arnarsson sem báðir eru rúmliggjandi. Góðu tíðindin eru hins vegar að Jónatan Magnússon verður með í dag en hann missti sem kunnugt er af Valsleiknum í síðustu viku.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla stuðningsmenn Akureyrar á suðvesturhorninu að fjölmenna á Ásvelli og styðja strákana. Sömuleiðis er ljóst að það er gríðarlegur áhugi á Akureyri að koma á Greifann og fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á stórum tjöldum.
Leikurinn hefst klukkan 18:30 og útsendingin fimmtán mínútum fyrr eða klukkan 18:15.
Þar sem leikurinn er í beinni útsendingu á netinu verðum við ekki með textalýsingu að þessu sinni.
Stjarnan og Fram mætast sömuleiðis í kvöld en þeirra leikur hefst klukkan 19:30 og er líka sýndur á sportTV.is.
Haukar eru klárlega eitt stærsta liðið í boltanum í dag
14. október 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Kynning á Haukum - andstæðingum okkar í dag
Það er sannkallaður stórleikur á dagskrá í dag þegar Akureyri Handboltafélag heldur suður í Hafnarfjörð til að leika við Íslandsmeistara Hauka. Haukum var spáð toppsæti deildarinnar í ár og þrátt fyrir að tefla fram býsna breyttu liði frá því í fyrra þá er hefðin sterk hjá Haukunum og öruggt að á þeim bænum er ávallt krafa um sigur. Við grípum hér hluta úr kynningu Morgunblaðsins á liði Hauka sem skrifuð var af Guðmundi Hilmarssyni blaðamanni mbl.
Haukar mæta til leiks sem ríkjandi Íslandsmeistarar en undir stjórn Arons Kristjánssonar hafa Haukarnir hampað Íslandsmeistaratitlinum tvö ár í röð.
Það er engum blöðum um það að fletta að Haukarnir eru stórveldi í karlahandboltanum en frá því að annar titill félagsins kom í hús árið 2000, eftir 57 ára bið, hefur verið nær óslitin sigurganga hjá Hafnarfjarðarliðinu. Guðmundur Karlsson stýrði Haukunum til sigurs árið 2000, sem dugði þó ekki til að hann héldi starfi sínu, og síðan hafa Haukarnir bætt sex Íslandsmeistaratitlum við, 2001, 2003, 2004, 2005, 2008 og 2009. Liðið hefur fjórum sinnum orðið bikarmeistari, 1980, 1997, 2001 og 2002. Þá hafa Haukar fimm sinnum verið krýndir deildarmeistarar þegar úrslitakeppnin var við lýði en Haukar urðu deildarmeistarar, 1994, 2002, 2003, 2004 og 2005.
Erfitt að fylla í skörðin Ákveðið uppbyggingarstarf er hafið hjá Haukunum og í vetur munu nokkrir ungir og uppaldir Haukastrákar stíga fram á sviðið. Haukar hafa orðið fyrir töluverðri blóðtöku en aðalleikstjórnandi liðsins undanfarin ár og einn þeirra besti leikmaður, Andri Stefan, er kominn til Noregs og þá eru Eyjamennirnir Kári Kristján Kristjánsson og Arnar Pétursson horfnir á braut. Báðir skilja þeir eftir sig stór skörð sem ekki verður auðvelt að fylla. Kári nautsterkur línumaður og Arnar mikill leiðtogi og gríðarlegur varnarjaxl.
En með hinn afar færa Aron Kristjánsson í „brúnni“ og þá sigurhefð sem skapast hefur hjá Haukunum er ekki annað hægt en að reikna með þeim í titilbaráttu þó svo að á pappírunum mæti þeir til leiks með veikara lið en undanfarin ár.
Um markmið Haukaliðsins í vetur sagði Aron: „Við eigum svo sem eftir að setjast niður og setja okkur markmið. Stefnan hjá Haukum á hverju ári er að vera í toppbaráttunni og það verður engin undantekning gerð á því í ár. Við mætum með mikið breytt lið til leiks, höfum misst mikilvæga pósta í okkar liði svo nú munu ungir leikmenn taka meiri ábyrgð, bæði í varnarleik og sóknarleik.“
Ætlar að nota Björgvin mikið á miðjunni „Ég kem til með að nota menn í stöðum sem þeir eru ekki vanir að spila og til að mynda ætla ég að nota Björgvin Hólmgeirsson mikið á miðjunni. Þrátt fyrir þessar breytingar tel ég að við séum með nægilega gott lið til að vera með í toppbaráttunni. Gæðin eru til staðar og ég held að okkur muni vaxa ásmegin eftir því sem líður á tímabilið og við náum betur saman sem lið. Það eiga margir ungir uppaldir Haukastrákar eftir að láta ljós sitt skína í vetur,“ segir Aron, sem hafnaði þjálfaratilboði frá danska liðinu Århus GF í maí og ákvað að gera nýjan tveggja ára samning við Haukana.
Hverjir telur þú að verði ykkar helstu keppinautar í vetur? „Það er erfitt að segja til um það á þessari stundu en mér sýnist FH-ingarnir vera mjög sterkir, Valsmenn verða harðir í horn að taka og lið Akureyrar verður betra en í fyrra. Þessi lið ásamt okkur eru kannski þau sterkustu. Lið eins og Fram og HK koma skammt á eftir. Bæði hafa góð byrjunarlið en vantar kannski aðeins upp á breiddina. Ég held að mótið eigi að geta orðið jafnt og skemmtilegt,“ sagði Aron.
Sigurbergur og Birkir Ívar eru ávallt erfiðir viðureignar
Leikmannahópur Hauka 2009-2010 Aron Rafn Eðvarðsson 20 ára markvörður Birkir Ívar Guðmundsson 33 ára markvörður Björgvin Hólmgeirsson 22 ára leikstjórnandi/bakvörður Einar Örn Jónsson 33 ára hægri hornamaður Elías Már Halldórsson 26 ára hægri bakv./hornamaður Freyr Brynjarsson 32 ára vinstri hornamaður Gísli Jón Þórisson 23 ára bakvörður/leikstjórnandi Guðmundur Árni Ólafsson 19 ára hægri hornamaður Gunnar Berg Viktorsson 33 ára Vinstri/hægri bakvörður Heimir Óli Heimisson 19 ára línumaður Jónatan Jónsson 22 ára línumaður Pétur Pálsson 24 ára línumaður Sigurbergur Sveinsson 22 ára vinstri bakvörður Sigurður Guðjónsson 19 ára línumaður Stefán Huldar Stefánsson 19 ára markvörður Stefán Rafn Sigurmannsson 19 ára vinstri hornamaður Tjörvi Þorgeirsson 19 ára leikstjórnandi Þórður Guðmundsson 20 ára vinstri bakvörður
Helstu breytingar á leikmannahópnum frá því í fyrra Kári Kristján Kristjánsson, línumaðurinn sterki, yfirgaf Haukana í sumar og er genginn í raðir svissneska liðsins Amicitia Zürich. Kári var þriðji markahæstur hjá Haukunum í úrvalsdeildinni í fyrra, lék alla leikina, 21 talsins, og skoraði 79 mörk.
Leikstjórnandinn Andri Stefan spilar í Noregi í vetur en hann gekk í raðir norska meistaraliðsins Fyllingen. Andri hefur verið lykilmaður í Haukaliðinu undanfarin ár og spurning hvernig Íslandsmeisturunum gengur að fylla skarð hans. Andri var næstmarkahæstur Haukanna í deildinni í fyrra með 82 mörk í 21 leik.
Arnar Pétursson sem hefur verið fyrirliði Haukaliðsins undanfarin ár er kominn til sinna gömlu félaga í ÍBV.
Gísli Guðmundsson markvörður yfirgaf Haukana í sumar og gekk til liðs við nýliða Gróttunnar.
Arnar Jón Agnarsson vinstrihandarskytta fór frá Haukunum til þýska 2. deildarliðsins Aue þar sem hann hefur farið mjög vel af stað í haust.
Björgvin Hólmgeirsson, yngri bróðir landsliðsmannsins Einars Hólmgeirssonar, er kominn til Hauka. Hann er uppalinn hjá ÍR en lék með Stjörnunni á síðustu leiktíð.
Haukar fengu í sumar Guðmund Árna Ólafsson frá Selfyssingum og sömdu við hann til þriggja ára. Guðmundur er 19 ára gamall unglingalandsliðsmaður, örvhentur hornamaður.
Það var frábær stemming á Greifanum á síðasta leik
12. október 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur Hauka og Akureyrar sýndur beint á sportTV.is
Þeir bregðast ekki frekar en fyrri daginn snillingarnir á sportTV.is og Greifanum, þeir ætla að sýna leik Hauka og Akureyri Handboltafélag beint á netinu líkt og í síðustu viku. Það hefur orðið að samkomulagi við veitingahúsið Greifann að sýna leikinn á stórum tjöldum í veislusalnum á 2. hæð líkt og í síðustu viku.
Leikurinn hefst klukkan 18:30 á miðvikudaginn og útsendingin væntanlega 10 mínútum áður. Það var frábær stemming á Greifanum á Valsleiknum, mæting fór fram úr björtustu vonum, c.a. 90 manns komu enda aðstæður allar hinar bestu.
Útsendingin er í miklum gæðum og því þarf öflugt netsamband til að hún njóti sín sem best. Myndgæðin voru með miklum ágætum á Greifanum þannig að við hvetjum alla til að koma og njóta leiksins í hópi annarra stuðningsmanna.
Aðgangseyririnn felst í því að áhorfendur kaupa í raun pizzuhlaðborð á afar hóflegu verði eins og kemur fram hér að neðan.
Í boði er spennandi pakki á afar hóflegu verði: leikurinn ásamt pizzahlaðborði og 0,5 lítra gosglasi á kr 1.200 fyrir 12 ára og eldri, 500 kr fyrir 6-12 ára og frítt fyrir 5 ára og yngri.
Það er því upplagt að mæta á Greifann og slá saman kvöldverðinum og handboltaleiknum í beinni útsendingu.
Að sjálfsögðu verður hægt að tengjast útsendingu þeirra sportTV.is manna af heimasíðu Akureyrar Handboltafélag.
Það styttist í fyrsta heimaleik Akureyrar sem verður gegn FH fimmtudaginn 22. október klukkan 19:00. Sala á stuðningsmannakortum og ársmiðakortum er hafin og verður hægt að kaupa kortin á Greifanum meðan á Haukaleiknum stendur svo og annan varning tengdum Akureyri Handboltafélagi.
Væntanlega verður hægt að kaupa þessa svörtu boli merktir AHF á miðvikudaginn.