Þegar Hreiðar Levý sneri aftur til Akureyrar
5. febrúar 2015
Hreiðar Levý Guðmundsson sneri aftur til liðs við Akureyri Handboltafélag tímabilið 2014-2015 en kappinn hafði verið að kljást við meiðsli og lék því sinn fyrsta leik þann 5. febrúar 2015 þegar Akureyri tók á móti hans gamla liði ÍR. Hreiðar kom sterkur inn í markið í síðari hálfleik og tók nokkra góða bolta í 23-23 jafntefli liðanna.
Sjónvarpsmenn RÚV gripu Hreiðar í viðtal eftir leik og ræddu aðeins við hann um formið og hvert hann stefndi eftir að hafa náð sér góðum af meiðslunum.