Sverre og Gunnar léku aldrei saman þó báðir hafi verið í Akureyrarbúningnum
13. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik Akureyrar og Aftureldingar
Það eru ekki mjög mikið um viðtöl í fjölmiðlum eftir leik Akureyrar og Aftureldingar í gærkvöldi. Hugsanlega stafar það að einhverju leiti af því að Aftureldingarmenn voru á mikilli hraðferð til að ná flugi suður strax eftir leikinn. Einar Sigtryggsson blaðamaður mbl.is náði tali af Heiðari Þór Aðalsteinssyni sem var einmitt valinn maður Akureyrarliðsins í leiknum.
Heiðar Þór: Ætlum að gera Andra Snæ að lukkudýri liðsins
Heiðar Þór Aðalsteinsson, vinstri hornamaður Akureyringa, var drjúgur í kvöld þegar lið hans lagði Aftureldingu 25:20 í Olís-deild karla. Hann nýtti færi sín vel í horninu, skoraði þrjú mörk úr erfiðri stöðu og átti góðar sendingar fram völlinn sem nýttust félögum hans í hraðaupphlaupum.
Heiðar Þór var fenginn í viðtal hjá mbl.is. „Ég er sammála því að ég hefði mátt fá fleiri sendingar í leiknum en ég fór inn þótt ég hefði ekki mikið pláss, fannst liðið þurfa að fá mark á þeim tímapunktum. Ég var orðinn ansi pirraður í síðari hálfleik þar sem ég fékk varla boltann út í hornið,“ sagði Heiðar um frammistöðu sína í leiknum.
„Við komum full rólegir inn í seinni hálfleikinn en þeir hafa örugglega fengið hárblásarann. Á fimm mínútum var allt í einu orðið jafnt og við búnir með tvö leikhlé. Ég er bara ánægður með að við komumst aftur yfir og héldum þeim svo frá okkur allt til loka. Það sýnir að við erum allir að koma til og karakterinn í liðinu er góður,“ sagði Heiðar um spilamennsku liðsins í kvöld.
„Nú er stutt í næsta leik, sem er bara gott. Við spilum við Hauka fyrir sunnan á mánudag og verðum að teljast smærra liðið. Við getum vel unnið þann leik. Við sýndum góðan leik gegn Val og ég er enn að hugsa um hvað við klúðruðum því dæmi illa á endasprettinum. Við erum að ná stöðugleika og erum allt annað lið en í upphafi móts,“ sagði Heiðar um framhaldið hjá Akureyri.
En hvað finnst Heiðari Þór um það að halda fyrirliða liðsins, Andra Snæ Stefánssyni, á bekknum leik eftir leik. „Það er markmiðið núna að gera hann að lukkudýri liðsins. Hann er góður í því“ sagði Heiðar léttur að vanda.
Heiðar Þór Aðalsteinsson maður Akureyrarliðsins í leiknum
Hjá visir.is var það Ólafur Haukur Tómasson sem stóð fréttavaktina. Hann náði tali af Sverre Andreas Jakobssyni þjálfara Akureyrar og Gunnari Þórssyni leikmanni Aftureldingar áður en hann stökk af stað út á flugvöll.
Sverre: Við erum að leiðrétta slaka byrjun
„Við sýndum frábæra liðsheild. Þetta eru flottir strákar og eru búnir að vinna hörðum höndum frá því við byrjuðum að spila þessa leiki í haust og hafa unnið sig í gegnum mikið mótlæti sem skilar sér í frábæri liðsheild. Liðsheildin small, karakterinn small og það er okkar styrkleiki,“ sagði Sverre, þjálfari Akureyrar, sem var mjög ánægður með sína menn í kvöld.
Akureyri byrjaði leiktíðina afar illa og tapaði fyrstu fimm leikjum tímabilsins og útlitið var ekki bjart norðan heiða. Liðið hefur hins vegar tekist að snúa blaðinu ágætlega við og hafa nælt í átta stig úr sex leikjum eftir það. „Strákarnir hafa lagt gífurlega mikið á sig og það er ekki sjálfsagt að snúa blaðinu við eftir að lenda í svona sterku mótlæti í upphafi tímabils en þeir eiga skilið mikið hrós en það er enn mikið verk fyrir höndum. Við erum rétt að leiðrétta kaflann sem við lentum í í byrjun svo við erum kannski nokkurn veginn á pari. Við erum að leitast eftir stöðugleika í liðið svo við getum mætt samkeppnishæfir í hvaða leik sem er. Við erum að nálgast það, við getum gefið okkur það. Við erum á betri vegferð núna en í byrjun,“ sagði Sverre.
Sverre og Ingimundur meta hvernig á að taka á Mosfellingunum
Gunnar: Ef það vantar markvörslu þá þurfa hinir að bæta það upp
„Þetta var ekki nógu gott. Ég veit ekki hvað það var sem gerðist, ég vil ekki segja að við höfum verið hræddir við að fara í KA-heimilið en það leit þannig út. Við mættum ekki tilbúnir og vorum alltaf einu skrefi á eftir þó við náum að jafna þá annað slagið en þá verðum við að halda áfram því þetta kemur ekki af sjálfu sér,“ sagði Gunnar Þórsson leikmaður Aftureldingar eftir leikinn en hann var ekki alltof sáttur með frammistöðu sinna manna í leiknum í kvöld.
Markvarsla Aftureldingar í fyrri hálfleiknum var engin og hefur það eflaust haft eitthvað að segja með forystu heimamanna þegar hann var flautaður af. Gunnar taldi að þó markvörsluna hafa vantað þá vildi hann ekki kenna henni um og hélt því fram að þá hefði vörnin og sóknin bara átt að gera betur. „Það vantaði klárlega markvörsluna í fyrri hálfleik. Það má kannski segja að ef heppnin hefði verið með okkur í fyrri hálfleik að þá hefðum við kannski getað verið nær þessu eða jafnvel tekið þetta. Stundum er markvarslan ekki í lagi og þá verðum við í vörninni bara að stíga upp og við verðum að skora meira,“ sagði Gunnar, sem var markahæstur í liði Aftureldingar í kvöld.
Gunnar Þórsson í hraðaupphlaupi en Hreiðar Levý varði frá honum
Við bjóðum Þránd og Gunnar velkomna norður
11. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Rangur tími á leiknum gegn UMFA í Dagskránni
Því miður fór rangur leiktími inn á auglýsingarnar fyrir fimmtudagsleikinn gegn Aftureldingu. í auglýsingunni var sagt að leikurinn hæfist klukkan 19:00 en réttur leiktími er klukkan 18:30. Þetta uppgötvaðist ekki fyrr en búið var að prenta Dagskrána og því ekki hægt að leiðrétta það. Hins vegar er búið að lagfæra flestar götuauglýsinganna og að sjálfsögðu hér á vefnum.
Við biðjum því alla að láta rétta tímasetningu leiksins berast til ættingja og kunningja sem hugsanlega fylgjast ekki með á netinu. Leikurinn hefst sem sé klukkan 18:30 eða hálfsjö á fimmtudaginn.
Það er rétt að minna á að í leikmannahópi Aftureldingar eru tveir fyrrum leikmenn Akureyrar Handboltafélags. Þetta eru hornamaðurinn eldfljóti Gunnar Kristinn Þórsson Malmquist og stuðboltinn á línunni Þrándur Gíslason Roth. Gunnar lék með Akureyri tímabilið 2013-2014 en gekk að því loknu til liðs við Aftureldingu. Þrándur kom sömuleiðis til Akureyrar haustið 2013 og lék hér tvö tímabil en er nú kominn aftur til síns fyrra félags.
Gunnar er í hópi markahæstu manna Aftureldingar í vetur, með 25 mörk það sem af er tímabilsins. Þeirra langmarkahæsti maður, hægri hornamaðurinn Árni Bragi Eyjólfsson, hefur skorað 50 mörk en hefur misst af síðustu leikjum vegna meiðsla. Þess má geta að Árni Bragi steig sín fyrstu spor á handboltavellinum hér fyrir norðan með yngri flokkum KA.
Á eftir Árna Braga koma Birkir Benediktsson með 35 mörk og Böðvar Páll Ásgeirsson með 34. Jóhann Jóhannsson og línumaðurinn Pétur Júníusson þarnæstir með 28 mörk hvor.
Liðsfélagarnir Gunnar og Þrándur nýkomnir til liðs við Akureyri haustið 2013
Liðin mættust í hörkuleik í Mosó fyrr í vetur, hvernig fer fyrir norðan?
10. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
Heimaleikur gegn Aftureldingu á fimmtudaginn
Akureyri tekur á móti Aftureldingu í KA-Heimilinu á fimmtudaginn klukkan 18:30. Leikurinn er liður í 12. umferð Olís deildarinnar en Akureyri hefur reyndar aðeins leikið 10 leiki þar sem útileik gegn ÍBV var frestað fyrr í vetur.
Akureyri er með 6 stig í 9. sæti deildarinnar á meðan Afturelding er með 12 stig í 5. sætinu. Afturelding sem endaði í 2. sæti bæði í deildinni og á Íslandsmótinu í fyrra hefur verið í smá erfiðleikum með að halda stöðugleika það sem af er móti.
Á sama tíma hefur Akureyri verið að leika betur og betur eftir afar erfiða byrjun á tímabilinu, skemmst er að minnast hve stutt liðið var frá því að leggja topplið Vals að velli á Hlíðarenda í síðustu umferð.
Heimir Örn Árnason skoraði mest 11 mörk í leik fyrir Akureyri og var það einmitt í heimaleik gegn Aftureldingu, hér má sjá öll mörkin úr leiknum sem fram fór þann 21. mars 2013
Strákarnir hafa nú unnið 4 af síðustu 6 leikjum sínum eftir að hafa tapað fyrstu 5 leikjum tímabilsins, það er því um að gera að mæta í KA-Heimilið og styðja strákana áfram til sigurs, með þessu áframhaldi mun liðið halda áfram að klífa töfluna, áfram Akureyri!