Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Auđveldur sigur FH í Höllinni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfrćđi  -  Höllin  -  Lagiđ  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilabođ - Vefur KA - Vefur Ţór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabiliđ 2014-15

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Tölfrćđi leiksins 
    Akureyri - FH  20-27 (8-14)
Olís deild karla
Íţróttahöllin
Fim 16. október 2014 klukkan: 19:00
Dómarar: Magnús Kári Jónsson og Ómar Ingi Sverrisson
Umfjöllun

Ţrándur var markahćstur í dag

16. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Auđveldur sigur FH í Höllinni

FH-ingar sóttu Akureyringa heim í Höllina á Akureyri í kvöld og sóttu tvö mikilvćg stig. Jafnt var á fyrstu tölum leiksins en um miđjan fyrri hálfleik sigldu FH-ingar frammúr og litu aldrei til baka. Eftirfarandi umfjöllun er ćttuđ frá Siguróla Magna Sigurđssyni.

Ţađ var margt um manninn í Höllinni í kvöld ţegar ađ „erkifjendur“ Akureyri Handboltafélags komu í heimsókn. Leikurinn byrjađi fjörlega og var ansi hrađur. Heimamenn byrjuđu íviđ betur og skoruđu auđveld mörk á FH-ingana. Ţađ breyttist hinsvegar ansi fljótlega, ţví í stöđunni 6-6 á 13. mínútu leiksins skelltu FH-ingar í lás. Ţeir Andri Berg og Ísak Rafnson í miđjublokkinni lokuđu á allt sóknarspil Akureyringa og börđu úr ţeim sjálfstraustiđ. Akureyringar skoruđu ekki í 14 mínútur á međan FH kom međ sjö mörk í röđ og breytti stöđunni í 13-6. Sex marka munur var í hálfleik og var fjölmörgum áhorfendum ekki skemmt.


Bergvin Ţór Gíslason mćttur í sóknina eftir langa fjarveru og skorađi tvö góđ mörk

Ljóst var ađ seinni hálfleikurinn yrđi mikil brekka fyrir heimamenn og gerđu ţeir sér ennţá erfiđara fyrir í upphafi međ ţví ađ tapa boltanum oft á glórulausan hátt. FH komst mest í 8 marka forskot en ţá rönkuđu heimamenn örlítiđ viđ sér, ţó án ţess ađ gera alvöru atlögu ađ FH. Ţrátt fyrir ađ FH vćru tveimur mönnum fćrri tókst Akureyringum ekki ađ skora, ţetta var bara ekki ţeirra kvöld. Akureyri minnkađi mest niđur í fimm mörk en lengra komust ţeir ekki. Hafnfirđingar léku viđ hvurn sinn fingur og höfđu gaman ađ á međan heimamenn virkuđu pirrađir og eyddu jafnvel allt of miklu púđri í slaka dómara leiksins.

Lokatölur urđu 27-20 og sanngjarn sigur FH stađreynd. FH-ingar áttu svör viđ flestum sóknarađgerđum heimamanna í dag og skoruđu oft og tíđum glćsileg mörk. Hjá Akureyri var ákveđiđ andleysi sem einkenndi og jafnvel pirringur. Ţeir hafa átt betri daga og vita ţađ sennilega best sjálfir.


Ţrándur Gíslason var atkvćđamikill á línunni í seinni hálfleiknum

Mörk Akureyrar: Ţrándur Gíslason 5, Heiđar Ţór Ađalsteinsson 4 (3 úr vítum), Brynjar Hólm Grétarsson 3, Sigţór Árni Heimisson 3, Bergvin Ţór Gíslason 2 , Kristján Orri Jóhannsson 2 , Sverre Jakobsson 1.
Tomas Olason varđi 16 skot í markinu, ţar af eitt vítakast.

Mörk FH: Ísak Rafnsson 6, Ragnar Jóhannsson 5, Benedikt Reynir Magnússon 5, Magnús Óli Magnússon 4, Ásbjörn Friđriksson 4 (2 úr vítum), Daníel Matthíasson 2, Halldór Ingi Jónasson 1.
Ágúst Elí Björgvinsson varđi 14 skot í markinu.

Tengdar fréttir

Heimir skiljanlega ósáttur međ gang mála

19. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viđtöl eftir leik Akureyrar og FH

Leikur Akureyrar og FH varđ svo sannarlega ekki sú skemmtun sem menn höfđu vonast eftir, eiginlega algjör bömmer fyrir alla fylgjendur Akureyrarliđisins á međan FH-ingar gátu veriđ kampakátir. Ţetta kemur vel fram í ţeim viđtölum sem tekin voru viđ ţjálfara og leikmenn strax eftir leikinn.
Byrjum á viđtölum Einars Sigtryggssonar viđ Heimi Örn Árnason ţjálfara Akureyrar og Daníel Matthíasson leikmann FH.

Heimir Örn: Bara orđlaus

„Hvađ get ég sagt? Ég er bara orđlaus. Ţađ er skandall hjá okkur ađ bjóđa upp á svona leiki. FH liđiđ er gott en viđ bara gátum ekki neitt. Sissi (Sigţór Árni Heimisson) náđi sér ekki á strik í kvöld og ţá erum viđ bara í vandrćđum í sókninni. Ţađ hlaut ađ koma ađ ţví. Hann getur ekki átt stórleik í hverjum leik. Viđ erum allt of tens hérna á heimavelli og erum ekki ađ sýna okkar réttu hliđar.“ Svo mörg voru ţau orđ en ţótt Sigţór hafi ekki átt sinn besta dag ţá voru ađrir útispilarar eins og ferđamenn ađ bíđa eftir ađ sjá norđurljósin, algjörir farţegar.

Heimir og Sigurpáll Árni reyna ađ átta sig á hlutunum

Daníel: Pekingvörnin er orđin dálítiđ gömul

Daníel Matthíasson er tvítugur Akureyringur sem er nýr í herbúđum FH. Hann fékk samning viđ Fimleikapilta ţegar hann hélt suđur í háskólanám. Leiddist honum ekki í kvöld ţegar FH rúllađi yfir liđ Akureyringa í Olís­deild karla. Daníel er línumađur og hafđi hann í nógu ađ snúast í leiknum.

„Viđ erum tveir ađ skipta línustöđunni á milli okkar. Mér gekk vel í kvöld og fékk ţví meiri spiltíma en vanalega. Ţađ var gaman ađ koma á gamla heimavöllinn og mér var vel tekiđ af áhorfendum. Ég ţekki liđsmenn Akureyrar vel en ţađ var sérdeilis gaman ađ glíma viđ Sverre og Ingimund í ţessum leik. Ţeir eru reyndar orđnir ađeins eldri en á blómaskeiđi Pekingvarnarinnar. Hún er satt ađ segja orđin dálítiđ gömul og menn eru komnir međ lausnir gegn henni,“ sagđi hinn kornungi Daníel hvergi banginn ađ skjóta á gömlu landsliđshetjurnar.

Daníel nćstum sloppinn í gegnum Akureyrarvörnina

Birgir H. Stefánsson hjá visir.is rćddi einnig viđ Heimi Örn svo og Halldór Jóhann Sigfússon ţjálfara FH og Ísak Rafnsson leikmann FH.

Heimir Örn: Gćti ţurft ađ kalla á sálfrćđing

„Menn virđast bara yfirspenntir á heimavelli,“ sagđi Heimir Örn Árnason ţjálfari Akureyrar allt annađ en sáttur eftir leik. „Ţetta gerđist ađeins líka á síđasta tímabili og ţetta er eitthvađ sem menn verđa ađ vinna í, ég gćti ţurft ađ kalla á sálfrćđing. Viđ erum ekki sama liđ á útivelli og heimavelli.“

Fjöldi sóknarmistaka hjá ţínum mönnum fór langt međ ađ klára leikinn
„Ég veit ekki hvađ viđ köstuđum oft í hendurnar á ţeim, útaf og ég veit ekki hvađ og hvađ. Ţetta á bara ekki ađ sjást í handboltaleik í október. Ţetta vćri hugsanlega í lagi á Opna Norđlenska í upphafi ágúst en ţetta er ekki bođlegt.

Ţađ er ađ koma einhverjum á óvart ađ Bergvin sé mćttur aftur í liđiđ hjá Akureyri, er veriđ ađ taka áhćttu međ hann?
„Nei, alls ekki. Hann er alveg heill en hann er bara ekki kominn međ sinn kraft í öxlina eins og sást í dag. En hann skilađi samt sínu, átti stođsendingar og mörk.“

Hvađ međ reynsluboltana í sóknarleik Akureyrar sem skila núll mörkum í dag?
„Elli var frábćr í síđasta leik, okkar besti mađur en hann náđi sér ekki á strik í dag. Svona er boltinn, stundum nćr mađur takti og stundum ekki en ţađ voru svo margir ađrir sem voru lélegir. Mađur var ađ bíđa eftir ţví ađ einhver af ţeim sem voru ađ koma inn fćri ađ stíga upp en ţađ voru bara eiginlega allir jafn lélegir.“

Halldór Jóhann: Ţetta var sterkur sigur

„Ţađ verđur mjög skemmtilegt í rútunni á leiđinni heim,“ sagđi Halldór Jóhann Sigfússon strax eftir leik.

„Ég er gríđarlega ánćgđur međ varnarleikinn og sérstaklega í fyrri hálfleik ţar sem viđ erum ađ spila frábćra vörn og fá ađeins átta mörk á okkur. Í heildina er ţađ frábćrt ađ fá bara á sig tuttugu en ţađ kom samt smá kafli í seinni hálfleik ţar sem viđ gáfum ađeins eftir og ţađ má bara ekki. Liđ Akureyrar er frábćrt og ţar eru reynslumenn sem vita ađ svona mun er hćgt ađ vinna upp á stuttum tíma ţannig ađ ţađ var svolítiđ okkar hlutverk ađ halda mönnum á tánum og halda leikskipulaginu.“

Ţiđ í raun og veru fariđ langt međ ađ klára leikinn í fyrri hálfleik.
„Já, viđ eigum góđan kafla ţar og ţá kemur hik á liđ Akureyrar. Viđ setjum pressu á ţá og ţeir fara ađ tapa fullt af boltum en viđ erum samt líka klaufar varđandi fráköst og fleira, ţađ eru ákveđnir ţćttir sem vantar ađ falla međ okkur og ţá jafnvel útaf reynsluleysi en ţađ kemur vonandi međ tímanum. Ég er í heildina mjög stoltur af strákunum í dag og ţetta var sterkur sigur.“

Eitthvađ er Halldór Jóhann ekki alveg sáttur á ţessari stundu

Ísak Rafnsson: Skemmtileg rútuferđ heim framundan

„Viđ spilum fyrst og fremst frábćrlega sem liđ,“ sagđi Ísak Rafnsson eftir leik eftir ađ hafa tekiđ viđ verđlaunum sem mađur leiksins. Ísak var međ 100% skotnýtingu ţangađ til ađ hann tók síđasta skot leiksins rétt áđur en leiktíminn rann út en ţann bolta varđi Tomas Olason. „Ţetta skot ţarna undir restina var bara af ţví ađ ég leit á klukkuna og sá hvađ tíminn vćri, ég var meira bara ađ klára leikinn.“

Ţú fékkst pláss til ađ leika ţér međ í dag fyrir utan
„Já, ţeir gáfu mér tćkifćri á ţví ađ skjóta. Ţeir gáfu mér í raun skotleyfi og ég tek ţví frá hverjum sem er og skora bara.“

Ţetta er frábćr frammistađa hjá ykkur ađ landa svona öruggum sigri fyrir norđan,
„Já algjörlega, ţađ er alltaf gaman ađ vinna hér fyrir norđan. Frábćr stemming í húsinu, geggjađir áhorfendur og viđ fórum ţetta langt á liđsheildinni í dag. Frábćr vörn, agađur og góđur sóknarleikur og ţađ er aukalega gaman ađ taka tvö stigin hér ţví ţá er skemmtileg rútuferđ heim framundan.“

Ísak Rafnsson var valinn mađur FH liđsins í leiknum

Á sport.is eru viđtöl Siguróla Magna Sigurđssonar viđ ţjálfarana Heimi Örn og Halldór Jóhann

Heimir Örn: Niđurlćging á heimavelli

Heimir Örn Árnason, ţjálfari Akureyringa, var allt annađ en sáttur eftir stórt tap á heimavelli gegn FH í kvöld.

Halldór Jóhann: Vissum ađ ţeir vćru sterkir inn á miđjuna

Halldór Jóhann Sigfússon, ţjálfari FH, var ađ vonum sáttur međ ađ sćkja tvö stig norđur í land í sinn gamla heimabć. Hann rćddi viđ sportvarpiđ eftir leik.



Kynningarefni frá HSÍ

16. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - FH í Höllinni

Ţađ er nóg ađ gera í boltanum í dag, fjórir leikir í Olís deildinni og viđbúiđ ađ spennustigiđ verđi hátt í mörgum ţeirra.

Leikir umferđarinnar eru sem hér segir:
Akureyri – FH fimmtudaginn 16. október kl. 19:00 Íţróttahöllin á Akureyri
HK - ÍR fimmtudaginn 16. október kl. 19:30 Digranesi
Stjarnan - Fram fimmtudaginn 16. október kl. 19:30 TM-höllin
Afturelding - Haukar fimmtudaginn 16. október kl. 19:30 N1-höllin
Valur – ÍBV laugardaginn 18. október kl. 16:00 Vodafone-höllin

Eins og stađan er í augnablikinu verđur ekki textalýsing frá leiknum á vegum heimasíđunnar en viđ munum í stađinn vísa á ađrar lýsingar frá leiknum ţegar ţar ađ kemur.



Ási í leik međ Akureyri 9. febrúar 2008



13. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

FH - mótherji Akureyrar á fimmtudaginn

Ţađ er heldur betur mikilvćgur leikur á fimmtudaginn ţegar Akureyri mćtir FH í Íţróttahöllinni. Leikir liđanna hafa svo sannarlega veriđ dramatískir og skemmtilegir ţannig ađ ţetta er klárlega leikur sem enginn má missa af.

Undanfarin ár hefur FH liđiđ veriđ í toppbaráttu íslenska handboltans enda hefđin og kröfurnar miklar frá fornu fari. FH hefur leikiđ í úrvalsdeild síđastliđin sex ár, vorin 2009 og 2010 endađi FH í 5. sćti deildarinnar, en nćstu ţrjú ár, 2011-2013 í 2. sćti en síđasta vor hafnađi FH í fjórđa sćtiđ eftir mikla baráttu, einkum viđ Fram og ÍR um ţađ sćti. Voriđ 2011 varđ FH Íslandsmeistari eftir spennandi einvígi viđ Akureyri.

Nokkrar breytingar urđu hjá FH-ingum fyrir ţetta tímabil. Einar Andri Einarsson ţjálfari til margra ára fór og ţjálfar nú toppliđ Aftureldingar. Í hans stađ er kominn á hliđarlínuna Akureyringurinn Halldór Jóhann Sigfússon sem varđ Íslandsmeistari međ KA 1997 og 2002 en hélt síđan til Ţýskalands. Viđ heimkomuna gekk Halldór til liđs viđ Fram en lagđi keppnisskóna á hilluna voriđ 2012.
Halldór sagđi ţó ekki skiliđ viđ handboltann og tók viđ ţjálfun meistaraflokks kvenna hjá Fram. Framstúlkur urđu Íslandsmeistarar voriđ 2013 undir stjórn Halldórs og hann ţjálfađi Framliđiđ einnig síđasta tímabil.


Halldór Jóhann rćđir viđ sína menn í hálfleik

Nokkrir leikmenn fóru frá FH í lok síđasta tímabils. Markvörđurinn Daníel Freyr Andrésson, sem var kominn í landsliđshópinn fór til Danmerkur, hornamađurinn Einar Rafn Eiđsson til Noregs og sömuleiđis Halldór Guđjónsson.
Ţá eru línumennirnir Atli Rúnar Steinţórsson og Sigurđur Ágústsson hćttir svo og galdramađurinn Valdimar Fannar Ţórsson. Raunar gengur nú orđrómur um ađ Valdimar Fannar hafi sést á ćfingum hjá Fram síđustu daga en allavega er hann ekki lengur í herbúđum FH.

FH hefur fengiđ í ţeirra stađ unglingalandsliđsmarkvörđinn Brynjar Darra Baldursson frá Stjörnunni. Frá Akureyri fengu FH ingar Daníel Matthíasson sem er ungur og gríđarlega hraustur línumađur.


Daníel (nr 3) tók fullan ţátt í baráttu Akureyrar gegn FH í Höllinni í fyrra

Frá Selfossi fengu FH ingar hćgri hornamanninn Andra Hrafn Hallsson auk ţess sem nokkrir leikmenn fćrđu sig frá 1. deildarliđi ÍH yfir til FH.

Burđarásar FH liđsins eru svo reynslumiklir kappar, ţar nefnum viđ fyrstan leikstjórnandann Ásbjörn Friđriksson, fyrrum leikmann Akureyrar en Ási hefur veriđ einn almikilvćgasti leikmađur FH liđsins undanfarin ár.


Ásbjörn í leik FH og Aftureldingar

Sömu sögu má segja af skyttunum Ragnari Jóhannssyni og Magnúsi Óla Magnússyni auk ţess sem Ísak Rafnsson hefur komiđ sterkur inn í skyttuhlutverkiđ.


Magnús Óli skorar í leik FH og Aftureldingar. Myndir: Björgvin Franz fimmeinn.is

Markahćstu leikmenn FH ţađ sem af er Olís deildinni eru: Ragnar Jóhannsson međ 33 mörk, Ásbjörn Friđriksson međ 29, Magnús Óli Magnússon 24 og hinn eldfljóti hornamađur Benedikt Reynir Kristinsson međ 23 mörk.

Markverđir FH eru báđir ungir en gríđarlega flottir, Ágúst Elí Björgvinsson fékk heldur betur eldskírn í deildinni í fyrravetur ţegar Daníel, ađalmarkvörđur liđsins meiddist og leysti Ágúst markvarđarstöđuna stóran hluta mótsins, og fram í úrslitakeppnina.

FH og Akureyri mćttust tvisvar í Höllinni í fyrravetur, fyrst í bikarkeppninni í sannkölluđum háspennuleik sem fór í framlengingu og ţá hafđi FH betur 30-32. Ţrem dögum seinna mćttust liđin aftur í Höllinni, sá leikur var í Olís deildinni og ţá fór Akureyri međ eins marks sigur 24-23 međ marki sjö sekúndum fyrir leikslok.

Akureyri var í mikilli baráttu í fyrravor um ađ sleppa viđ umspil um ađ halda sćti í deildinni en FH á sama tíma í baráttu um ađ komast í fjögurra liđa úrslitin. Liđin mćttust í Hafnarfirđi í ţriđju síđustu umferđ deildarinnar og ţar vann Akureyri gríđarlega mikilvćgan sigur 26-28 og tvö stig sem heldur betur komu sér vel í lok deildarinnar.

Ţađ er ţví óhćtt ađ gera ráđ fyrir frábćrri skemmtun í Höllinni klukkan 19:00 á fimmtudaginn.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson