Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Akureyri með sjö marka sigur á Fjölni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2014-15

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Tölfræði leiksins 
    Fjölnir - Akureyri  24-31 (13-12)
Coca Cola bikar karla
ÍM Grafarvogi
Þri 9. desember 2014 klukkan: 18:00
Dómarar:
Umfjöllun

Við völdum Bergvin mann leiksins

9. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri með sjö marka sigur á Fjölni

Fjölnismenn buðu upp á mikla stemmingu í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi í dag og stefndu að því að setja áhorfendamet. Það var líka greinilegt strax í upphafi að Fjölnismenn gáfu allt í leikinn og báru enga virðingu fyrir úrvalsdeidlarliðinu. Að sama skapi virtist Akureyrarliðið engan veginn mæta af krafti í leikinn enda jafnt á flestum tölum allan fyrri hálfleikinn.
Undir lok fyrri hálfleiks náðu Fjölnismenn tveggja marka forystu en munurinn var þó aðeins eitt mark, 13-12 fyrir Fjölni í hálfleik.

Atli hefur greinilega brýnt menn í hálfleik því Akureyri náði fljótt forystunni og frumkvæðinu í leiknum. Lengst af seinni hálfleik munaði fjórum mörkum en eftir að Akureyri náði fimm marka forystu 20-25 slökuðu menn á og Fjölnir minnkaði muninn í tvö mörk, 23-25.
Þar með var allur kraftur úr heimamönnum og Akureyri skoraði sex mörk gegn einu á lokamínútunum þannig að sjö marka sigur 24-31 var í höfn.

Atli lagði greinilega upp með að spara leikmenn sem hafa verið í meiðslum, þannig kom Sigþór Árni Heimisson ekkert við sögu í leiknum, Ingimundur lék mjög stutt svo og Elías Már sem var veikur í gær.
Bergvin Þór Gíslason lék stóran hluta leiksins í sókninni og átti prýðisleik, skoraði tvö mörk og fiskaði vítaköst á færibandi. Sömuleiðis lék Heimir Örn Árnason mikið í sókninni. Kristján Orri Jóhannsson var öruggur á vítalínunni og skoraði úr öllum sjö vítunum sem liðið fékk.

Fjölnismenn geta verið nokkuð sáttir með sinn leik en þeir voru í ágætis málum lengi vel í leiknum. Markahæstur þeirra var unglingalandsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson sem skoraði nánast að vild með glæsilegum skotum. Hann endaði með 10 mörk í leiknum og klárlega bráðefnilegum leikmaður þar á ferðinni.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 10 (7 úr vítum), Heiðar Þór Aðalsteinsson 8, Daníel Örn Einarsson 4, Halldór Logi Árnason 3, Bergvin Þór Gíslason, Heimir Örn Árnason og Þrándur Gíslason 2 mörk hver.
Tomas stóð í markinu allan leikinn og varði ein 18 skot í leiknum.

Akureyri er þar með komið í 8-liða úrslit bikarkeppninnar en væntanlega verða þeir leikir spilaðir í byrjun febrúar.

Tengdar fréttir

Bein útsending frá leiknum

9. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Fjölnir - Akureyri í beinni útsendingu á Fjölnir TV

Það verður flautað til leiks í Grafarvoginum klukkan 18:00 í dag þar sem Akureyri mætir heimamönnum í Fjölni í 16 liða úrslitum Coca Cola bikarsins. Fjölnismenn verða með leikinn í beinni útsendingu á vefnum sínum, og eiga heiður skilið fyrir framtakið. Þannig að stuðningsmenn sem komast ekki í Fjölnishöllina geta fylgst með leiknum þar.

Smelltu hér til að fylgjast með útsendingunni.


Fyrsta viðureign þessara liða í sögunni

8. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bikarleikur gegn Fjölni á þriðjudaginn

Akureyri hefur leik í Coca-Cola Bikarnum gegn Fjölni í Grafarvoginum á þriðjudaginn. Fjölnir leikur í 1. deild og situr sem stendur í 3. sæti deildarinnar, stigi á undan Hömrunum. Akureyringurinn Arnar Gunnarsson þjálfar liðið og hefur verið að gera flotta hluti með Fjölnis liðið og klárlega stefnir í hörkuleik.

Fjölnir lék við Hamrana hér í Höllinni þann 15. nóvember og vann þar eins marks sigur eftir æsispennandi lokamínútur, 18-19.

Þess má til gamans geta að þetta er í fyrsta sinn sem Akureyri og Fjölnir mætast á vellinum. Leikurinn er sýndur beint á vefnum en að sjálfsögðu hvetjum við stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að kíkja í Grafarvoginn og styðja strákana, leikurinn hefst klukkan 18:00 á þriðjudaginn.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson