Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15
Svekkjandi tap í Mosó með óbragð í munni - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Fyrri leiktímabil

Tímabilið 2014-15

Leikmenn meistarafl. karla
Úrslit leikja
Deild karla




Ljósmyndir frá leiknum     Textalýsing frá leiknum     Tölfræði leiksins 
    Afturelding - Akureyri  27-26 (12-12)
Olís deild karla
N1 höllin
Sun 15. febrúar 2015 klukkan: 16:00
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson, og Hafsteinn Ingibergsson
Umfjöllun

Spilamennska Ingimundar var gríðarlega jákvæð

15. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Svekkjandi tap í Mosó með óbragð í munni

Akureyri mætti öðru sinni í Mosfellsbæinn á stuttum tíma í dag þegar Afturelding og Akureyri mættust í 19. umferð Olís Deildar karla. Að þessu sinni var Akureyri að leika mun betri handbolta og hefði átt að fá eitthvað útúr leiknum en furðuleg dómgæsla á lokamínútunum sá hreinlega til þess að Akureyri tapaði leiknum með minnsta mun.

Leikurinn var jafn til að byrja með en Akureyri leiddi og spilaði vel. Þegar 18 mínútur voru búnar af fyrri hálfleik var staðan 4-9 fyrir Akureyri og spilamennskan ein sú besta hjá liðinu í langan tíma. Afturelding náði hinsvegar að minnka muninn í þrjú mörk en stuttu fyrir hálfleik var staðan 9-12 fyrir Akureyri sem gaf eftir og heimamenn jöfnuðu í 12-12 sem var staðan í hálfleik.

Tomas Olason var virkilega öflugur í markinu í fyrri hálfleik og varði 12 skot þar á meðal 1 vítakast. Hinsvegar slökknaði aðeins á Tomasi í síðari hálfleik en hann hélt þó áfram að taka mikilvæga bolta og endaði með 17 varin skot. Hreiðar kom í markið þegar lítið var eftir og varði 2 skot.

Síðari hálfleikur var virkilega spennandi og liðin skiptust á að leiða í upphafi. Akureyri náði svo fjórum mörkum í röð og sneri leiknum sér í vil. Afturelding náði hinsvegar að jafna og lokamínúturnar voru spennuþrungnar.

Sóknarleikur Akureyrar í dag var erfiður eins og hann hefur verið undanfarið en þó var hann mun beittari en áður. Menn voru að ná að opna fyrir Heiðar Þór og Kristján Orra í hornunum og Halldór Logi var sterkur á línunni. Þá má ekki gleyma nokkrum bombum fyrir utan hjá Ingimundi og Nicklas Selvig. Selvig hefur verið að koma vel inn í liðið hjá Akureyri en þrátt fyrir nokkra glataða bolta þá má drengurinn eiga það að hann er að reyna og er stöðug ógn af honum.


Ingimundur var magnaður í leiknum í dag. Mynd: ​Eggert Jó­hann­es­son mbl.is

Síðustu fimm mínútur leiksins þá fóru dómarar leiksins, þeir Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson, gjörsamlega að dæma með heimamönnum. Fyrstu 55 mínútur leiksins var í raun ekki hægt að setja út á dómgæsluna en það var furðulegt að horfa upp á hvað gerðist á lokamínútunum.

Afturelding fékk tvö ansi ódýr vítaköst sem skiluðu þeim mörkum. Þegar ein og hálf mínúta er eftir er Akureyri í sókn og brotið á Ingimundi sem reynir að senda boltann til Sigþórs sem fær slaka sendingu (vegna brots) í fótinn. Boltinn er dæmdur af Akureyri vegna fótsins og Afturelding fer í sókn. Sverre var ekki sáttur og talaði við dómara leiksins (veit að sjálfsögðu ekki hvað fór þar á milli) sem endaði með því að Sverre fékk tveggja mínútna brottvísun.

Hreiðar Levý ver í markinu og Akureyri náði að því er virtist boltanum en mjög óvænt var Aftureldingu dæmt aukakast. Úr þeirri sókn kom svo mark hjá þeim í horninu sem reyndist sigurmark leiksins.

Ég tjái mig ekki oft um dómgæslu eða kenni dómurum um niðurstöðu leikja en í dag er ekki hægt að líta framhjá því að það hallaði verulega á Akureyri þegar mest á reyndi. Bæði leikmenn og þjálfari liðsins hafa bent á þetta eftir leik og vona ég að dómarar leiksins yfirfari lokamínúturnar og reyni að læra af þessum afdrifaríku ákvörðunum sínum.

En eftir þetta tap er Akureyri að dragast afturúr í baráttunni í deildinni. Það eru hinsvegar ennþá 8 leikir eftir í deildinni og því nóg af stigum enn í boði. Spilamennska liðsins var mjög ánægjuleg og hefði skilað stigi eða stigum undir flestum kringumstæðum.

Þá var sérstaklega jákvætt að sjá Ingimund Ingimundarson í dag en hann var hrikalega öflugur fyrir liðið. Það er orðið langt síðan maður sá Ingimund jafn kröftugan sóknarlega séð og minnti á margt þegar hann fór fyrir sókn ÍR-liðsins fyrir nokkrum árum.

Mörk Akureyrar: Heiðar Þór Aðalsteinsson 5 (1 úr víti), Ingimundur Ingimundarson 5, Nicklas Selvic 5, Halldór Logi Árnason 4, Kristján Orri Jóhannsson 4, Þrándur Gíslason 2 og Sigþór Árni Heimisson 1 mark.
Í markinu varði Tomas Olason 17 skot, þar af 1 vítakast og Hreiðar Levy Guðmundsson varði 2 skot.

Tengdar fréttir

Kristjáni var ekki hlátur í hug frekar en öðrum eftir leikinn

16. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Umsagnir eftir sunnudagsleikinn við Aftureldingu?

Það er óhætt að segja að Akureyringar voru hrikalega ósáttir við að fara tómhentir úr Mosfellsbænum á sunnudaginn eftir hörkugóðan handboltaleik. Það er ekki oft sem við vogum okkur að fara orðum um störf dómara en það virðist býsna samhljóða álit þeirra sem fylgdust með leiknum að dómaraparið hafi átt afleitan kafla á síðustu mínútum leiksins. Sú skoðun endurspeglast í viðtölunum hér á eftir og fleirum sem voru viðstaddir leikinn.

Byrjum á viðtölum Ingva Þórs Sæmundssonar sem birtust á visir.is.

Kristján Orri: Mikil framför frá síðasta leik

Kristján Orri Jóhannsson, hægri hornamaður Akureyrar, var súr í broti eftir tapið gegn Aftureldingu í dag.
„Þetta er ógeðslegt. Þetta er grátlegt. Mér fannst við eiga allavega eitt stig skilið út úr þessum leik. En svona er boltinn, hann er stundum ósanngjarn,“ sagði Kristján sem skoraði fjögur mörk úr fimm skotum í dag.

Þrátt fyrir vonda niðurstöðu spilaði Akureyri mun betur en í leiknum gegn Aftureldingu á fimmtudaginn þar sem liðið tapaði með fimm mörkum, 22-17. Kristján sá marga ljósa punkta í leik Norðanmanna í dag.
„Þetta var mikil framför frá síðasta leik og það er mjög jákvætt. Mér fannst ekki koma langur lélegur kafli eins og hefur komið í síðustu þremur leikjum.
Grimmdin og áræðnin var til staðar allan tímann, sem er mjög gott, og með því áframhaldi munum við ná hala inn einhver stig,“ sagði Kristján sem var ánægður með sóknarleik Akureyrar í dag.

„Sóknarleikurinn kom vel út og við getum byggt á því. Það var bara eitt mark sem skildi liðin að og það er erfitt að finna hvaða atriði urðu þess valdandi að við töpuðum,“ sagði Kristján að lokum.


Kristján Orri í leiknum. Mynd: Stefán/visir.is

Örn Ingi: Erum með tvo frábæra markmenn

Örn Ingi Bjarkason átti frábæran leik þegar Afturelding bar sigurorð af Akureyri, 27-26, í miklum spennuleik í N1-höllinni í dag. Leikstjórnandinn skoraði tíu mörk í leiknum og átta mörk í leiknum gegn Norðanmönnum á fimmtudaginn.
Það er því eðlilegt að spyrja hvort Örn vilji ekki spila við Akureyri í hverri einustu umferð?
„Jú, þetta gengur vel hjá liðinu og gengur vel hjá mér. Mér líður mjög vel,“ sagði hann og hló.

„Þeir eru með hörkuvörn og það var gaman að geta gert eitthvað af viti í þessum leikjum,“ sagði Örn en Mosfellingar voru lengi í gang í dag og lentu tvívegis fimm mörkum undir í fyrri hálfleik.
„Við vorum mjög slakir í byrjun leiks og vorum bara ekki vaknaðir. Við virkuðum þungir og áhugalausir en náðum svo að koma varnarleiknum í lag og halda þeim í fáum mörkum.
Við það fengum við sjálfstraust í sóknarleiknum og svo kom þetta koll af kolli,“ sagði leikstjórnandinn knái sem bar lof á markvörðinn Pálmar Pétursson sem varði vel eftir að hann kom inn á í fyrri hálfleik.
„Við erum með tvo frábæra markmenn og þeir skipta sköpum í nánast hverjum leik.“

Myndband af lokamínútu leiksins

Eins og kom fram í inngangi þótti mönnum margt orka tvímælis hjá dómurum leiksins á síðustu fimm mínútum leiksins. Því miður höfum við ekki aðgang að upptöku frá þeim tíma en vefurinn fimmeinn.is hefur þó birt myndband af lokamínútu leiksins (þar á meðal er reyndar leikhlé sem Akureyri tók). Í upphafi sést einmitt afar umdeilt atvik þar sem Aftureldingu er dæmdur boltinn eftir frákast sem færir þeim síðan sigurmarkið í leiknum:



Á fimmeinn.is eru þó nokkur viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna, byrjum á viðtali við Ingimund Ingimundarson:

Ingimundur: Ég skora á dómarana að skoða lokin á leiknum

Ingimundur Ingimundarsson leikmaður Akureyrar átti góðan leik í dag á móti Aftureldingu og var ósáttur eftir eins marks tap. Leikur liðsins sagði hannn líklega það besta sem liðið hefði sýnt eftir áramót. Ingimundi fannst halla á Akureyrar liðið í dómgæslu undir lokin og skorar á dómara leiksins að skoða síðustu mínútur leiksins.


Atl Hilmarsso: Leiðinlegt að svona frammistaða skili ekki stigi

Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar sagði liðið hafa átt skilið allavega eitt stig úr þessum leik, liðið hefðu sýnt mikla baráttu allan tímann og sárt að hafa ekki tekið neitt með sér heim. hann sagðist ekki vera vanur að tala um dómara í leikjum, en síðustu 5 mínúturnar hefðu fallið með heimamönum.

Kristján Orri: Langar helst bara að fara að gráta

Hornamaðurinn knái Kristján Orri sagðis helst vilja bresta í grát eftir eins marks tap á móti Aftureldingu í dag. Hann vildi lítið tala um dómana undir lok leiks og sagðist ekkert ætla að falla í gildrur fréttaritara þegar hann var spurður um hvort dómararnir hefðu tekið stig af þeim.

Örn Ingi: Við erum nýliðarnir í þessu móti

Örn Ingi sagðist sáttur með tvö stig í dag. Liðið er nú komið að hlið Vals á toppnum og sagðist Örn ekkert vita hvort Valsmenn myndu misstíga ig á næstunni, hann sagði deilsina geta spilast allavega og öll lið gætu sigrað alla.

Einar Andri: Vorum heppnir að ná í sigur í dag

Einar Andri þjálfari Aftureldingar var sáttur með 2 stig eftir sigurinn á móti Akureyri, en hann sagði liðið ekki hafa verið almennilega klárir í leikinn í upphafi.



Á sport.is ræddi Þorsteinn Haukur Harðarson við þjálfarana Atla Hilmarsson og Einar Andra Einarsson

Atli Hilmarsson: Fannst halla á okkur í dómgæslunni

Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyringa, var svekktur með tapið gegn Aftureldingu í kvöld en sagðist þó stoltur af liðinu sínu eftir frammistöðuna.
Þá segist Atli óánægður með dómgæsluna í leiknum en vildi þó ekki tjá sig mikið um það.

Einar Andri: Ánægður með sigurinn en ekki spilamennskuna

Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með sigurinn gegn Akureyri í kvöld en þetta var í annað sinn á fjórum dögum sem liðin mættust.
Einar var þó ekkert sérstaklega sáttur við spilamennsku liðsins þrátt fyrir sigurinn.



Loks skoðum við viðtöl Péturs Hreinssonar sem birtust á mbl.is. En líkt og aðrir þá ræddi hann við Ingimund og Örn Inga:

Ingimundur: Við erum í basli

„Við gáfum allt sem við áttum í þennan leik, sem hefur kannski vantað í síðustu leikjum. Við tökum það með okkur en vissulega er mjög súrt að tap hérna með einu marki, en þetta var bara hörkuleikur“ sagði Ingimundur Ingimundarson leikmaður Akureyrar sem tapaði naumlega fyrir Aftureldingu 27:26 í Olís-deild karla.

Akureyringar spiluðu vel og voru yfir stærstan hluta leiksins en spilamennska norðanmanna var talsvert betri en þeir sýndu á fimmtudag gegn Aftureldingu.
„Það var meiri kraftur í okkur og áræðni og stemning sem hefur vantað í leikinn hjá okkur eftir áramót og við fengum það í dag. Það er fúlt að taka ekki tvö stig norður,“ sagði Ingimundur sem var í stóru hlutverki í sóknarleik liðsins og skoraði fimm mörk.

„Við erum í basli, og það er bara gamla tuggan, maður kemur í manns stað. Þetta hefur ekki beint verið mitt hlutverk en ég þurfti að taka það á mig í dag og það gekk allt í lagi,“ sagði Ingimundur en nánar er rætt við hann í myndskeiðinu hér að neðan.

Örn Ingi: Ljúft að taka þetta

Örn Ingi Bjarkason fyrirliði Aftureldingar dró vagninn hjá liðinu í dag en hann skoraði 10 mörk í sætum sigri Aftureldingar á liði Akureyrar í Olísdeild karla í handknattleik en lokatölur urðu 27:26 fyrir Aftureldingu sem skoraði sigurmarkið þegar 30 sekúndur voru eftir.
„Mjög svo, við vorum undir mestmegnis af leiknum en góður karakter skilaði tveimur stigum í hús hér á heimavelli, eins og það á að vera. Við erum með frábæra stemningu og frábæran sal.“ sagði Örn Ingi.

Það gekk erfiðlega hjá Mosfellingum í fyrri hálfleik og Akureyri náði meðal annars fimm marka forystu.
„Við vorum hikstandi og virkuðum frekar þungir. Um leið og við náðum upp okkar aðalsmerki þá fór þetta í gang. Þar af leiðandi fáum við sjálfstraust í vörn sem sókn. En þessi góði varnarleikur skilaði okkur hægt og bítandi aftur inn í leikinn.
Við erum mjög ánægður með að klára þennan leik, þetta var erfiður leikur, hann var þungur og þeir börðust eins og ljón og við líka en við uppskárum eins og við sáðum, og það var ótrúlega ljúft að taka þetta,“ sagði Örn Ingi en sjá má viðtalið við Örn hér að neðan.



Tomas átti stórleik síðast þegar liðin mættust

15. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Afturelding - Akureyri í textalýsingu

Akureyri og Afturelding mætast öðru sinni í Olís-deildinni á fjórum dögum í Mosfellsbænum. Vonandi ná strákarnir að bæta fyrir tapið á fimmtudaginn og hvetjum við alla stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að mæta í Mosfellsbæinn og styðja strákana klukkan 16:00 í dag.

Fyrir þá sem ekki komast bendum við á að leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á heimasíðunni.

Til baka    Senda á Facebook

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson