Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Alvarleg tíðindi fyrir íslenskan handbolta

22. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar

Guðjón Valur fór úr axlarlið!

Heimasíðan var að fá þær fréttir núna rétt í þessu að Guðjón Valur Sigurðsson hefði orðið fyrir því áfalli að fara úr axlarlið strax á annarri mínútu í leik Gummesbach og Balingen í dag. Læknir liðsins kippti Guðjóni aftur í liðinn en hann kom þó ekki meira við sögu í leiknum, en sat á bekknum og hvatti sína menn áfram, sem unnu leikinn 35:28.
Ekki er vitað á þessu stundu hversu alvarlegt málið er eða hversu lengi Guðjón verður frá æfingum og keppni. En að sjálfsögðu sendum við Guðjóni bestu kveðjur að norðan og óskum honum góðs bata.

Hægt er að rifja upp þýskukunnáttuna og lesa umfjöllun um leikinn á heimasíðu Gummersbach hér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson