 Evrópuhandboltinn í sjónvarpinu
| | 2. október 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarHandbolti á Eurosport 2 - sá spænski í dagSjónvarpsstöðin Eurosport 2 er farin að sýna handbolta í töluverðum mæli. Þar er til dæmis þáttur á hverjum þriðjudegi þar sem farið er yfir umferð liðinnar helgar í spænsku 1. deildinni. Sá þáttur er á dagskrá kl. 17 að íslenskum tíma, þannig að hægt er að fylgjast með Árna Sigtryggssyni og öðrum leikmönnum á Eurosport síðar í dag. Aðrar sjónvarpsstöðvar sýna handbolta reglulega, til dæmis danska ríkissjónvarpið. Við munum birta vikulega yfirlit yfir það sem hægt verður að sjá á þeim vettvangi.
Þessa vikuna lítur handboltadagskráin svona út:
Fimmtudagur, Eurosport 2
- 19:15 Meistaradeildin, Lubin (Póllandi) - Drammen HK (Noregi)
- 20.00 Meistaradeildin Valur - VfL Gummersbach
Þessir leikir fóru fram um síðustu helgi.
Laugardagur, Eurosport 2- 16.15 Drammen HK (Noregi) - SG Flensburg-Handewitt (Þýskalandi)
Þessi leikur er í BEINNI útsendingu - 18:00 Chehovskie Medvedi (Rússlandi) - HSV Hamburg (Þýskalandi)
Sunnudagur, Danmarks Radio 1- 13.45 GOG Svenborg TGI - Tatran Presov (Slóvakíu)
- 19:45 VfL Gummersbach (Þýskalandi) - Veszprem (Ungverjalandi)
|