Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það tókst ekki í gær



10. október 2007 - BHB skrifar

Akureyrarstúlkur úr leik í bikarkeppninni

Akureyri er úr leik í bikarkeppni kvenna í Handbolta eftir 12 marka tap 16-28 gegn Fram í KA-heimilinu í gærkvöldi.

Fyrri hálfleikurinn í heild sinni var það sem varð Akureyri að falli í leiknum en eftir hann var staðan 18-7 fyrir Fram. Síðari hálfleikur var mun betri að hálfu Akureyrar og tókst liðinu m.a. að koma muninum niður í sjö mörk þegar um 20 mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Undir lokin seig aðeins aftur á ógæfuhliðina og sömu mistök og sáust í fyrri hálfleik fóru að gera vart við sig. Að lokum enduðu leikar svo 28-16 fyrir Fram.

Fyrri hálfleikur var eins og áður sagði mjög slakur hjá Akureyri, gríðarlega margir glataðir boltar í sókn og ótímabær skot urðu liðinu að falli þar. Þar að auki má nefna að alls klúðruðust 5 víti í leiknum og þónokkur önnur mjög góð færi fóru í súgin. Munurinn hefði því alls ekki þurft að vera svona mikill.

Varnarleikurinn í fyrri hálfleik var mjög slakur eins og 18 mörk fengin á sig í einum og sama hálfleiknum bera vitni um. Í síðari hálfleiknum hins vegar tóku stelpurnar sig vel saman í andlitinu og vörðust vel auk þess sem markverðirnir fóru að taka nokkra varða bolta.


Arna Erlingsdóttir var ógnandi í sókninni og átti einna bestan leik hjá Akureyri, einnig má nefna að Ester Óskarsdóttir stóð vörnina ágætlega.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson