 Bráðungur maðurinn
| | 19. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarVill HSÍ Alfreð í fullt starf?Samkvæmt frétt þýska dagblaðsins Kölner Express í dag hefur Handknattleikssamband Íslands boðið Alfreð Gíslasyni að verða landsliðsþjálfari í fullu starfi, en hann sinnir því núna í hlutastarfi með þjálfarastöðunni hjá Gummersbach. Blaðið segir að HSÍ hafi boðið honum samsvarandi laun og hann er með í dag fyrir að þjálfa bæði landsliðið og Gummersbach.
Haft er eftir Alla, sem er 48 ára, að hann vilji vera áfram í þýsku deildinni. "Ef ég væri sextugur væri þetta mjög freistandi," er haft eftir honum í blaðinu.
|