Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

ÍR-ingar eru sýnd veiði en ekki gefin

30. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri gegn ÍR í bikarkeppninni

Lið Akureyrar mætir ÍR í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar á útivelli í næstu viku. Leikið verður annað hvort sunnudaginn 4. eða mánudaginn 5. nóvember.

Rúnar Sigtryggsson þjálfari og leikmaður Akureyrarliðsins segir ÍR-inga verðuga andstæðinga. "Við spiluðum tvo leiki við þá á undirbúningstímabilinu og áttum í hinum mestu vandræðum með þá. Báðir leikirnir unnust með einu marki eftir hörkuleiki," sagði Rúnar við heimasíðuna.

Leikirnir í 16-liða úrslitunum eru þessir:
Haukar 2 - Valur
Afturelding 2 - Fram
ÍR 2 - Haukar
ÍR - Akureyri
Víkingur 2 - Þróttur Vogum
Fram - Afturelding
Víkingur - Grótta
Stjarnan - HK

Á fundinum í dag var skrifað undirr samsstarfssamning HSÍ og Eimskips og verður Eimskip styrktaraðili bikarkeppni HSÍ næstu þrjú árin.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson