 Alfreð tekur strax á því hjá Gummersbach





| | 20. júlí 2006 - ÁS skrifar
Gummersbach hefur hafið æfingar, myndir17. júlí síðastliðinn var fyrsta æfingin hjá VfL Gummersbach undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Þar voru kynntir til leiks nýir leikmenn og þar á meðal var Sverrir Björnsson, fyrrum leikmaður KA. Alfreð er frægur fyrir að hafa áhugaverðan fótbolta í upphitun hjá sínum liðum þar sem ekkert er gefið eftir. Leikmennirnir fóru að sjálfsögðu í fótbolta áður en þeir Alfreð lét þá hlaupa til að sjá þolið sem þeir eru í. Myndirnar hér að neðan eru teknar af heimasíðu Gummersbach. Ég bendi svo á að tengill á heimasíðu Gummersbach er komin inn í Tengla ásamt mörgum nýjum tenglum.
 Allir nýju mennirnir hjá Gummersbach, Sverrir og Alfreð eru lengst til hægri.
 Að sjálfsögðu lét Alfreð drengina hita upp í fótbolta.
 Vel var tekið á því í fótboltanum en það er ekki að ástæðulausu af hverju Sverrir var kallaður hinn hvíti Kanu þegar hann lék með KA.
 Alfreð var tekinn í viðtal og spurður um framhaldið hjá Gummersbach.
 Eftir fótboltann talaði Alli við hópinn
 Guðjón Valur áritar hér Gummersbach flagg fyrir aðdáenda
 Sverrir býður hér eftir að fá að árita flaggið
 Liðið komið í útihlaup |