Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Höddi og Rúnar sitja saman og horfa á seinni leik KA og Þórs á síðasta tímabili en þeir fengu báðir rautt spjald í leiknum

1. ágúst 2006 - ÁS skrifar 

Akureyri hefur verið að æfa í rúma viku

Meistaraflokkur karla hjá hinu væntanlega liði, Akureyri Handboltafélag, hefur verið að æfa í rétt rúma viku. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari, hefur stjórnað mönnum í allskonar æfingum. Mikið hefur verið um hlaup og þess háttar æfingar enda þurfa menn að vera í formi þegar tímabilið byrjar en leikin verður þreföld umferð í ár og verða deildarleikirnir því 21.

Um leið og nýja liðið er orðið 100% klárt þá munu birtast myndir af æfingum og viðtöl við menn sem tengjast liðinu á væntanlegri heimasíðu Akureyrar Handboltafélags. Við hvetjum því fólk til að fylgjast vel með gangi mála en næsta tímabil verður virkilega áhugavert og hið nýja lið mun þurfa allan stuðning sem í boði er.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson