Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Guðjón Valur snoðaði sig eins og hann gerði áður með KA

9. ágúst 2006 - ÁS skrifar 

Guðjón Valur skipaður fyrirliði Gummersbach

Í dag var tilkynnt að Guðjón Valur Sigurðsson, fyrrum leikmaður KA, hafi verið skipaður fyrirliði VfL Gummersbach. Þetta er ótrúlegur heiður fyrir okkar mann en Gummersbach er sigursælasta félag þýska handboltans frá upphafi. Guðjón sem var valinn besti leikmaður þýsku deildarinnar á síðasta ári og varð einnig markakóngur deildarinnar er vel að fyrirliðabandinu kominn enda frábær persónuleiki sem drífur menn áfram.

Vel hefur gengið hjá Gummersbach á undirbúningstímabilinu en þeir tóku þátt í Sparkassen-Cup mótinu. Fyrsti leikur liðsins í riðlakeppninni var gegn TSV Altensteig og vannst mjög auðveldur sigur þar, 28-13, Guðjón Valur skoraði 6 mörk í leiknum.
Næsti leikur var gegn Friesenheim og eftir nokkuð jafnan leik vann Gummersbach 18-21 sigur og gerði Guðjón Valur 7 mörk.
Síðasti leikur riðilsins var gegn Svissnesku bikarmeisturunum, Wacker Thun, og þar fór Guðjón Valur á kostum og gerði 11 mörk í stórsigri Gummersbach á liði Thun, en lokatölur voru 30-12 fyrir Gummersbach.

Því næst spilaði Gummersbach í undanúrslitum keppninnar gegn Balingen/Weilsteten og vann Gummersbach góðan sigur þar 21-19, Guðjón Valur gerði 4 mörk í þeim leik.
Í úrslitaleiknum mætti Gummersbach þýskubikarmeisturunum frá Hamburg. Eftir að hafa leitt leikinn í hálfleik þá vann Hamburg leikinn 18-20 og fékk ávísun upp á 250.000 krónur í sigurlaun.

Tímabilið í þýskalandi hefst svo í lok ágúst mánaðar en fyrsti leikur Gummersbach er gegn Hildesheim á heimavelli 26. ágúst. Tímabilið verður vonandi vel lukkað hjá okkar mönnum en Alfreð Gíslason þjálfari ætlar sér stóra hluti með liðið.

Heimasíðan óskar Guðjóni til hamingju með nýju nafnbótina. Einnig vill heimasíðan óska Sverre Andreas Jakobssyni til hamingju með að nafnavandræðin séu úr sögunni, en hann hefur verið kallaður Sverrir Björnsson í afar langan tíma.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson