 Okkar menn spiluđu vel í gćr


| | 17. ágúst 2006 - ÁS skrifar
Gummersbach lagđi Tusem Essen í ćfingaleikTusem Essen tók á móti Gummersbach í ćfingarleik í gćr. Guđjón Valur Sigurđsson var ađ koma aftur til síns gamla liđs en hann spilađi í nokkur ár međ Essen. Ţá spilađi Alfređ Gíslason ţjálfari Gummersbach međ Essen og varđ Ţýskur meistari međ liđinu 1986 og 1987. 900 manns sáu Halldór Jóhann Sigfússon eiga stórleik međ Essen en ţađ dugđi ekki en leikurinn var hnífjafn, lokatölur voru Essen 29 Gummersbach 30.
Tusem Essen byrjađi leikinn mun betur og komst í 3-1 eftir 6 mínútna leik. Gummersbach jafnađi ţá í 4-4 og eftir ţađ var Gummersbach ávallt skrefinu á undan leikmönnum Essen. Gummersbach komst í 5 marka forystu í stöđunni 8-13 en Essen skorađi nćstu 4 mörk og sá munur hélst út fyrri hálfleikinn, hálfleikstöđur voru Essen 14 Gummersbach 15. Mikil spenna var í seinni hálfleik og fyrstu 20 mínútur hálfleiksins náđi Gummersbach aldrei meira en tveggja marka forskoti. Er níu mínútur lifđu af leiknum jöfnuđu Essen menn í stöđunni 25-25. Á nćstu sex mínútum rifu leikmenn Gummersbach sinn leik upp og komust í 26-29, Essen minnkađi muninn í 28-29 er ein mínúta var eftir en lokatölur voru 29-30 fyrir Gummersbach.
Guđjón Valur Sigurđsson var markahćsti leikmađur Gummersbach međ 9 mörk (ţar af tvö úr vítum), Róbert Gunnarsson skorađi 3 mörk. Sverre Andreas Jakobsson komst ekki á blađ enda spilar hann einungis vörn. Halldór Jóhann Sigfússon var svo markahćstur leikmanna Essen međ 8 mörk (ţar af 4 úr vítum) línumađurinn stóri Mark Dragunski skorađi 7 mörk fyrir Essen. |