Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sameinað lið mun spila fyrstu leiki sína hér á landi eftir tvo og þrjá daga

6. september 2006 - SÁ skrifar 

4 liða Sjallamót hjá körlunum

Ljóst er að Sjallamót karla mun verða skipað fjórum liðum þetta árið, líkt og í fyrra, en Fram hefur dregið sig úr keppni og þóttust þeir hafa látið vita af því fyrir löngu síðan. Eftir standa þá Akureyrar liðin tvö, Fylkir og ÍR. Ljóst er að afar áhugaverðir leikir eru framundan um komandi helgi og verður fróðlegt að sjá hvernig Akureyrar liðin munu koma þar út. Þarna fá liðin leiki gegn liðum sem munu leika í efri deildinni í vetur og verður gaman að sjá hve langt Akureyri er komið á þessari stundu.

Ákveðið hefur verið að allir leikir á Sjallamótinu, bæði karla og kvenna, munu fara fram í KA-Heimilinu. Mótið hefst á föstudaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson