Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Arnór Atlason er að stimpla sig vel inn í dönsku deildina

8. september 2006 - ÁS skrifar 

Arnór með 7 mörk í fyrsta leik

Arnór Atlason spilaði sinn fyrsta deildarleik með sínu nýja liði, FC Kaupmannahöfn, er liðið mætti Lemvig á útivelli í dag. Arnór spilaði afar vel í leiknum og var markahæstur með 7 mörk. Í hálfleik var staðan 12-16 fyrir FC Kaupmannahöfn, en lokatölur voru Lemvig 25 FC Kaupmannahöfn 32.

Þetta var upphafsleikur deildarinnar en áhugavert verður að fylgjast með gengi Arnóri og félögum hans í liði FC Kaupmannahöfn. Liðið ætlar sér virkilega stóra hluti bæði í Danmörku sem og í Evrópukeppnum en liðið endaði í 4. sæti dönsku deildarinnar á síðasta tímabili. Það er í raun ótrúlegt að hugsa sér að Arnór er einungis 22 ára gamall en hann hefur nú þegar afrekað svo miklu, og er lykilmaður í landsliði Íslands sem mun taka þátt á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í janúar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson