 Það styttist í tímabliðið hjá Rúnari Sigtryggs og mönnum hans Mynd: Skapti Hallgrímsson
| | 10. september 2006 - SÁ skrifar
Rúnar: Reiknaði með að spila betri vörnSjallamótið var um helgina og lenti Akureyri í 3. sæti. Liðið spilaði misjafnlega og tókum við Rúnar Sigtryggsson, þjálfara liðsins, í viðtal að móti loknu. Rúnar var að hluta til sáttur hvernig mótið spilaðist en væntir þess að liðið verði betra þegar mótið byrjar.
SÁ: Ertu sáttur með hvernig Sjallamótið spilaðist? Rúnar: Að sumu leyti og sumu leyti ekki. Ég reiknaði með að spila betri vörn á mótinu en ég er ánægður með sóknarleikinn fyrir utan nýtingu á dauðafærum.
SÁ: Vörnin er sögð eiga að verða sterkasti hluti Akureyrar í vetur, þarf ekki mikið að breytast til að hún verði það? Rúnar: Jú það þarf margt að breytast. Það vantaði í lið okkar á mótinu einn besta varnarmanninn í deildinni í dag, Hörð Fannar sem er erlendis. Það sýndi sig í Danmörku hvað hann er mikilvægur. Hann hefur vaxið með hverju árinu og bætt sig heilmikið í sumar í styrk og við væntum mikils af honum í vetur.
SÁ: Markvarslan, varstu sáttur með hvað þeir voru að verja í markinu? Rúnar: Nei, ekki nógu. Í öðrum leiknum var markvarslan í fínu lagi en maður vill sjá þá verja fleiri skot utan af velli.
SÁ: Varstu sáttur með sóknarleikinn? Rúnar: Já svona heilt yfir miðað við hvar við stöndum en ég ætlast samt til þess að þetta verði miklu smurðara þegar nær líður að mótinu.
SÁ: Alexey Kuzmins, varstu ánægður hvernig hann kom inn í liðið? Rúnar: Já, ég verð að segja það. Hann kemur mjög öflugur inn og væntum við mikils af honum á tímabilinu.
SÁ: Litháinn, Dmitrij Afanasjev, kom til reynslu. Hvað hefur þú að segja um hann? Rúnar: Þetta er efnilegur spilari og hann átti nokkur fín mörk í leiknum. Hann er hins vegar með þennan kvilla sem margir örvhentir hafa að hann getur ekki spilað vörn sem er náttúrulega mínus fyrir hann. Það fer samt ekki á milli mála að þetta er efnilegur leikmaður.
SÁ: Hvenær verður ákvörðun tekin með hann? Rúnar: Hann mun æfa með okkur fram í miðja næstu viku og þá skoðum við þetta.
Við þökkum Rúnari fyrir spjallið. |