 Það gekk ekki hjá leikskólastjóranum í dag
| | 22. september 2006 - SÁ skrifar
Æfingaleikur: 7 marka tap gegn HaukumAkureyri spilaði fyrsta æfingaleik helgarinnar í kvöld en liðið mætti Haukum. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik sigu Hafnfirðingarnir framúr og unnu að lokum 36-29 sigur á Akureyri.
Leikurinn fór rólega af stað og liðin nokkuð lengi í gang. Jafnræði var framan af en um miðjan fyrri hálfleik fara okkar menn að spila betur og þétta meðal annars vörn sína. Þeir ná frumkvæðinu og leiða meðal annars með tveimur mörkum. Lokamínútur hálfleiksins voru hins vegar ekki góðar og í stað þess að leiða leikinn þá voru þeir tveimur mörkum undir í hálfleik, 16-14.
Seinni hálfleikurinn var svo hreinlega lélegur af hálfu Akureyrar á öllum vígstöðum. Vörnin hætti að ganga og fór allt að leka inn, þá gekk sóknin ekki eins vel heldur. Haukamenn juku við muninn og unnu að lokum sjö marka sigur, 36-29.
Mörk Akureyrar: Magnús Stefánsson, Goran Gusic og Heiðar Aðalsteinsson 6 mörk hver, Alexey Kuzmins 4, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Aigars Lazdins 2, Nikolaj Jankovic og Bjarni Gunnar Bjarnason 1 mark hvor. Í markinu stóð Sveinbjörn Pétursson um 50 mínútur og varði 12 skot. Arnar Sveinbjörnsson lék hinar 10 og varði 2 bolta.
Á morgun mun liðið leika æfingaleiki við Víking og Fylki. Við munum að sjálfsögðu greina frá gangi mála í þeim leikjum, svo verið stillt á síðuna. |