Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Heiðar og félagar munu leika í hvítu búningunum í dag

30. september 2006 - ÁS skrifar 

Búningar karlaliðs Akureyrar

Valur mun taka á móti karlaliði Akureyrar í dag í Laugardalshöll. Hið nýja lið Akureyrar leikur að sjálfsögðu í nýjum búningum og birtum við hér myndir af búningum liðsins. Hér til vinstri sést vinstri hornamaðurinn Heiðar Þór Aðalsteinsson í aðalbúningi liðsins með auglýsingum. Á myndinni hér fyrir neðan er Hannes Karlsson, formaður Akureyrar, með varabúning liðsins og Skapti Hallgrímsson, varaformaður Akureyrar, með aðalbúning liðsins. Myndin er tekin áður en búningarnir voru merktir með númerum og merki styrktaraðila sett á þá.


Glöggir lesendur sjá að varabúningur liðsins (sá dökkblái) er keimlíkur búning Flensburg-Handewitt frá Þýskalandi sem Viggó Sigurðsson þjálfar um þessar mundir.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson