Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Flottur fyrri hálfleikur en seinni hálfleikurinn varð liðinu að falli



4. október 2006 - ÁS skrifar 

FH lagði kvennalið Akureyrar með þrem mörkum

Í gær fór fram fyrsti heimaleikur Akureyrar Handboltafélags. Kvennaliðið lék leikinn og tók á móti sterku liði FH. Lið Akureyrar tapaði fyrsta leik tímabilsins stórt en liðið kom sterkt til leiks í gær og byrjaði af krafti. Það hinsvegar dugði ekki til sigurs en við skulum sjá hvernig leikurinn spilaðist.

Lið Akureyrar byrjaði leikinn frábærlega og skoraði fyrstu 3 mörk leiksins. Vörn liðsins var mjög öflug og hún hélt hreinu fyrstu 12 mínútur leiksins sem er frábært. Lið Akureyrar leiddi leikinn í fyrri hálfleik, FH náði reyndar að jafna einu sinni en stelpurnar í liði Akureyrar voru einfaldlega betri í fyrri hálfleik og leiddu 10-7 í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn var svo skelfilegur, eftir að hafa leikið ákaflega vel í fyrri hálfleik þá náði liðið ekki að fylgja því eftir og með því að skora aðeins 4 mörk á rúmum 20 mínútum þá misstu stelpurnar af tækifærinu að ná stigum úr leiknum. Lið FH hinsvegar reif sig upp og náði góðri forystu. Lokatölur voru Akureyri 18 FH 21.

Ótrúlega leiðinlegt fyrir stelpurnar að fá ekkert útúr leiknum þar sem þær spiluðu svona vel í fyrri hálfleik. Hinsvegar er handboltaleikur 60 mínútur og það er ekki nóg að spila bara rétt rúmar 30 mínútur. En það var margt mjög jákvætt í leik liðsins og aldrei að vita hvernig uppskera vetrarins verður.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson