 Sveinbjörn var valinn maður leiksins af heimasíðu Akureyrar
| | 8. október 2006 - SÁ skrifar
Sveinbjörn: Vörnin er rosalega traustHinn 18 ára gamli Sveinbjörn Pétursson í marki Akureyrar átti frábæran leik í dag gegn ÍR. Hann var nokkrar mínútur að koma sér í gang en þegar það gerðist þá varði hann ótrúlega. 50% markvarsla í fyrri hálfleik og 43% í heildina segja allt sem segja þarf en Sveinbjörn hafði hreint ótrúlegan múr fyrir framan sig í dag. Við spjölluðum við Sveinbjörn eftir leikinn.
SÁ: Jæja Sveinbjörn, hvernig var að spila fyrsta leikinn hérna heima á Akureyri? Sveinbjörn: Þetta er bara rosalega góð tilfinning. Klárlega allt annað en að spila í Höllinni þar sem 50-60 manns eru sitjandi út um allt. Þetta er bara allt önnur stemmning hérna.
SÁ: Það hlýtur að muna að hafa mikið af fólki með sér? Sveinbjörn: Já, fólkið er alveg upp við mann og maður heyrir í hverjum einasta og þetta er alveg rosalega gott. Maður var pínu stressaður í byrjun en það fór bara af manni.
SÁ: Hvernig fannst þér liðið spila í dag? Sveinbjörn: Mér fannst við spila mjög vel. Vörnin er náttúrulega rosalega traust og þá kom þetta hjá manni. Svo í seinni hálfleik var þetta farið að leysast upp í smá vitleysu en það sáu allir að þetta stefndi í sigur hjá okkur. Annars var þetta yfir höfuð bara mjög gott.
SÁ: Það hlýtur að muna að hafa svona múr fyrir framan sig? Sveinbjörn: Já með þessa kappa Rúnar, Valda, Hödda, Magga og Aigars fyrir framan sig þá er þetta rosalega gott. Þeir eru mjög traustir fyrir.
SÁ: Þið hljótið að ætla að byggja á þessu? Sveinbjörn: Já eins og sást á þessum leik og Valsleiknum þá var vörnin að smella alveg en gegn Val þá gekk ekki sóknin alveg. Núna gekk þetta allt upp og við verðum að halda þessu áfram.
|