 Hvað gerir 2. flokkurinn í vetur?
| | 11. október 2006 - ÁS skrifar
2. flokkur: Fyrsti leikur við StjörnunaÞað er farið að styttast í fyrsta leik 2. flokks Akureyrar en hann er útileikur við lið Stjörnunnar. Leikurinn mun fara fram 28. október og daginn eftir á liðið leik við HK. Það eru miklar vonir bundnar við 2. flokkinn í ár en þjálfari flokksins er Aigars Lazdins. Mikil breidd er í flokknum enda var 2. flokkurinn sameinaður rétt eins og meistaraflokkur Akureyrar.
Í liði 2. flokks Akureyrar leika til að mynda Andri Snær Stefánsson, Ásbjörn Friðriksson, Sveinbjörn Pétursson og Heiðar Þór Aðalsteinsson sem hafa verið að spila með meistaraflokk í fyrstu leikjum liðsins.
Fyrsti heimaleikur liðsins verður svo 18. nóvember er liðið tekur á móti HK. |