Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Unglingaflokkur kvenna tapaði fyrstu leikjum sínum í deildinni

23. október 2006 - ÁS skrifar 

Unglingaflokkur kvenna tapaði tvisvar gegn HK

Um helgina lék unglingaflokkur kvenna tvo heimaleiki gegn HK en leikirnir voru liðir í efri deild unglingaflokks kvenna þar sem leikin er þreföld umferð. HK er með öflugt lið en meistaraflokkur félagsins er mikið byggður upp af leikmönnum unglingaflokksins en raunin er sú sama hjá Akureyri.

Fyrri leikurinn sem fór fram á laugardaginn var spilaður beint á eftir leik Akureyrar og HK í DHL-Deild kvenna. Lið HK leiddi leikinn allan tímann og var sigur þeirra í raun aldrei í hættu. HK leiddi nær allan leikinn með 6 mörkum en lokatölur voru Akureyri 28 HK 36.

Leikur liðanna sem fram fór á sunnudaginn var þó jafnari en þrátt fyrir betri leik hjá liði Akureyrar voru það HK stelpur sem unnu leikinn, 26-30.

Þetta voru fyrstu leikir unglingaflokksins í deildinni í ár og verður athyglivert að fylgjast með hvernig liðinu gengur í næstu leikjum. Deildin er hörð og eru allir leikirnir verulega erfiðir.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson