 Hvað gera Alex og félagar í öðrum heimaleik Akureyrar á morgun?
| | 4. nóvember 2006 - SÁ skrifar
Annar heimaleikur vetrarins á morgunEins og allir ættu að vita leikur Akureyri annan heimaleik sinn í vetur en að þessu sinni kemur Akureyrar-liðið Fylkir í heimsókn. Leikurinn, sem er 16:00 í KA-Heimilinu, verður því miður ekki í beinni lýsingu hér á síðunni en þar koma nokkrar ástæður inní. Því verður fólk bara enn fremur að mæta á leikinn og sjá okkar menn sem hafa verið að leika afar vel að undanförnu. Seinast þegar liðið lék á Akureyri var boðið upp á sannkallaða flugeldasýningu og algjöra toppskemmtun. Nú er bara spurning hvað gerist á morgun en okkar lið verður án Rúnars og Hödda eins og fram hefur komið.
Að lokum koma myndir frá fyrsta heimaleik Akureyrar, gegn ÍR.




Hvað gerist á morgun? Ekki láta þig vanta. |