 Það einkenndi kraftur Andra í dag
| | 6. nóvember 2006 - SÁ skrifar
Andri Snær: Þessi tvö stig eru gríðarlega mikilvæg Andri Snær Stefánsson átti flottan leik gegn Fylki í kvöld og skoraði 6 mörk í karakterssigri Akureyrar. Heimasíðan stökk á Andra eftir leik og fékk hann til að segja okkur hvernig hans taka á leikinn var en hann var vitaskuld sáttur með sigurinn.
SÁ: Andri, hvað getur þú sagt okkur um þessa tvo punkta sem liðið tók hér í kvöld? Andri: Það er óhætt að segja að þessi tvö stig eru gríðarlega mikilvæg og sérstaklega í ljósi þess að við vorum án tveggja helstu varnarjaxla okkar í dag. Samt sem áður kom ekkert annað til greina en að taka tvö stig hérna á heimavelli og ég get ekki annað en verið gríðarlega sáttur með það.
SÁ: Þetta var vinnusigur... Andri: Það er óhætt að segja það og það sást best í seinni hálfleik þar sem menn voru að djöflast og leggja sig fram í vörninni. Þá fór Hreiðar í gang og við fengum nokkur auðveld mörk. Bara vinnusigur og þetta hafðist.
SÁ: Ertu sáttur með leik liðsins í heildina? Andri: Nei, það er í raun margt sem var ekkert frábært í þessum leik. Ég held að við getum allir tekið undir það. Sérstaklega fyrri hálfleikur sem var ekki beysinn varnarlega og boltinn hefði getað gengið betur í sókninni. Menn voru ekki að taka alltaf bestu sénsana en þessa stundina er mér drullusama um það og er ég ógeðslega ánægður að hirða þessi tvö stig sem voru í boði.
SÁ: Það er ansi sterkt að sýna þann karakter að klára þetta, sérstaklega varnarlega, þegar það vantar Rúnar og Hörð Fannar, ekki satt? Andri: Já, ég er alveg sammála því. Við sýndum það bara að við höfum miklu meiri breidd en margir halda. Okei, þeir voru ekki með í dag en það var ekki að sjá í dag - sérstaklega í seinni hálfleik. Vörnin var að mínu mati mjög massív og þeir áttu í miklu basli með að skora.
Við þökkum Andra kærlega fyrir. |