Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvernig fer í kvöld?

9. nóvember 2006 - SMS skrifar 

Kvennaleikur í kvöld

Í kvöld klukkan 18:00 fær kvennalið Akureyrar sterkt lið Gróttu í heimsókn. Leikurinnn er í KA-heimilinu og er frítt inn.

Nú á dögunum unnu unglingaflokkur tvo leiki á heimavelli og vonandi gerir meistaraflokkur bara það sama en þær eiga núna tvo erfiða heimaleiki í röð. Í kvöld gegn Gróttu og á sunnudaginn gegn Haukum. Grótta er í 3. sæti í deidlinni með 10 stig, einu stigi á eftir toppliði Vals. Skemmtilegt verður að sjá hvað stelpurnar gera í kvöld á heimvelli og eins og áður sagði hefst leikurinn klukkan sex í KA heimilinu og það er frítt inn eins og venjulega. Allir að mæta og hvetja stelpurnar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson