 Ásbjörn skoraði 6 mörk í leiknum
| | 13. nóvember 2006 - SÁ skrifar
Ásbjörn: Skemmtilegasta sem ég hef gertÁsbjörn Friðriksson átti flotta innkomu í gær gegn Stjörnunni í ótrúlegum spennuleik. Ási hefur verið að koma sterkt inn í seinustu leikjum og verið óragur við að taka á skarið. Við ræddum við hann eftir leikinn en Ásbjörn var afar sáttur við að hafa tekið tvö stig á þessum erfiða heimavelli þennan daginn.
SÁ: Ásbjörn, það voru tvö sæt stig í Ásgarði hér í dag? Ásbjörn: Já, gríðarlega mikilvæg eins og gefur að skila. Við byrjum mjög illa og spilum boltanum ekki nógu hratt og erum að sækja fáum alltof mörg fríköst í sókninni. Við náum ekki að halda boltanum á floti eins og töluðum um fyrir leikinn. Þegar við svo förum að spila í seinni hálfleik að skynsemi þá söllum við á þá mörkum en við áttum að geta unnið þennan leik mun auðveldara.
SÁ: Varstu sáttur við leik liðsins? Ásbjörn: Ég er sáttur við stigin. Spilamennskan seinasta korterið var góð og vörnin var mjög góð í seinni hálfleik.
SÁ: Hvað viltu segja um þessa umbreytingu sem varð á liðinu í seinni hálfleik, þennan karakter? Ásbjörn: Þetta er frábært. Við erum sennilega með eina sterkustu vörn á landinu. Getum stillt upp rosalega hárri 6-0 vörn og eins 5-1 og það er alltaf góður varnarmaður á bekknum.
SÁ: Það hlýtur að vera gaman að spila leik eins og þennan? Ásbjörn: Skemmtilegasta sem ég hef gert.
SÁ: Hvað með liðið að undanförnu? Ásbjörn: Það er rosalegur stígandi búinn að vera í seinustu leikjum. Við náttúrulega byrjuðum á núlli í ágúst annað en önnur lið og við verðum bara betri.
Við þökkum Ásbirni fyrir og óskum honum til hamingju með þennan sigur. |