 Lilja átti góðan leik
| | 13. nóvember 2006 - SMS skrifar
Konur: Akureyri - Haukar (umfjöllun)Á laugardaginn fór fram leikur Akureyrar og Hauka í KA-Heimilinu, þessi leikur átti upphaflega að fara fram á sunnudag en honum var flýtt um einn dag. Leikurinn hófst rétt rúmlega tvö en höfðu Hauka stelpur eitthvað tafist á leiðinni norður yfir heiðar.
Ekki virtist sem rútuferðin sæti eitthvað í Haukunum því þær byrjuðu leikinn svo miklu betur að það lá við að leikurinn væri tapaður á fyrstu 10 mínútunum fyrir Akureyri. Sóknarleikurinn gekk hræðilega og vörnin var nokkuð götótt en samt var hún að halda ágætlega. Akureyri skorar aðeins 2 mörk á fyrstu 15 mínútunum í leiknum en fær á sig 10 en 6 af þeim voru úr hraðaupphlaupi, Hanna G. Stefánsdóttir fór mikinn í liði Hauka og skoraði 11 mörk í gær, og fór hún meidd útaf í fyrri hálfleik og kom aðeins smá inna í restina. Það var mjög gaman að horfa á Akureyri á köflum, en það voru allt of stuttir kaflar. Við minnkuðum muninn úr 3-10 í 6-11 og virtist vera að birta til en þessi munur hélst fram að hálfleik og staðan 9-15 í hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var búinn að vera hálfgerð vítakeppni enn 9 víti voru dæmd í ihálfleiknum. Dómarar leiksins voru afar slakir, og fékk leikmaður númer 13 hjá Haukum 2 gul spjöld í fyrrihálfleik og einnig Erla Hleiður í okkar liði sem á ekki að vera hægt. En einhver misskilningur var í gangi.
Það mátti halda að Akureyri hefði orðið eftir inn í klefa í hálfleik því þær voru ekki á tánum í byrjun seinni hálfleiks og voru Haukar ekki lengi að nýta sér það og komust í 10-22. Akureyri skoraði eitt mark á ellefu mínútum en þá kom virkilega góður kafli hjá Akureyri, stelpa að nafni Lilja Þórisdóttir kom inná í vinstri skyttuna en hún var búin að spila aðeins í hægri skyttu í fyrri hálfleik. Lilja leysti það hlutverk afskaplega vel af hendi og skoraði hún 3 af næstu 5 mörkum Akureyrar í röð, fiskaði 2 víti og svo brottvísun á Hauka. Þessi 5 mörk virtust vera að koma á réttum tíma og spurði maður sjálfan sig hvort þetta væri of seint þar sem 15 mínútur voru eftir og liðið að tapa með 7 mörkum. Maður þurfti ekki að hugsa það lengi því Haukar skora úr hraðri miðju sem aldrei var flautuð á og leikmenn Akureyrar ennþá á dólinu aftur í vörn. Athyglivert var að sjá dómarann leyfa þetta og þetta eina mark Hauka virtist slökkva logann okkar á að jafna leikinn. Dómarinn baðst svo afsökunar og tók þessi mistök á sig, en þetta mark var of crucial í stöðunni og komust stelpurnar ekki nær í bili og skoruðu Haukar 3 mörk í röð. En aftur komu stelpurnar okkar til baka og skoruðu 6 mörk gegn 2 Hauka á síðustu mínútunum og endaði leikurinn 21-27.
Mjög gaman var að sjá andann í liðinu í dag en Erla Hleiður fór mikinn í að brosa og rífa liðið með sér áfram þrátt fyrir slaka dómara og erfiðan leik. Það sem var að klikka í dag var bara sóknin, stelpurnar eru kannski hver og ein með eitt og tvö klikk úr skotum á markið og er það eðlilegt því skotin eru oftast mjög góð. Það sem er að klikka í sókninni eru glataðir boltar áður en þær ná að dúndra á markið. Liðið var samtals með 25 glataða bolta eða sóknarbrot í dag, sem er allt of mikið í svona leik.
Haukar spiluðu aftarlegt afbrigði af 3-2-1 vörn með Hönnu G. Stefánsdóttur fyrir framan sem, eins og áður sagði, skoraði 11 mörk og flest þeirra úr hraðaupphlaupum. Haukar skoruðu í kringum 14 mörk úr hraðaupphlaupum og Akureyri 1. Haukar voru að vinna boltann af Akureyri í vörn og þar lá hundurinn grafinn í dag. Það sem hefði einnig mátt betur fara í sóknarleiknum var að innleysingar hefðu mátt vera rleiri, ein innleysing á móti 3-2-1 vörn setur allt í kerfi.
Markahæst í liði Akureyrar var Erla Hleiður Tryggvadóttir með 6 mörk(4 úr vítum) úr 10 skotum. Næst kom Ester Óskarsdóttir með 5 mörk(2 úr vítum) úr 9 skotum. Þar á eftir koma Þórsteina 4/6, Lilja 3/5 og þrjár stoðsendingar sem gáfu mikilvæg mörk. Auður Ómarsdóttir 2/5 , Guðrún Tryggvadóttir 2/2 og fiskaði 4 víti. Jóhanna Tryggvadóttir 0/1 Emma 0/1. Sibba varði 12 bolta í leiknum og flesta þeirra í seinni hálfleik en hún var að verja vel í honum en komst ekki í gang í fyrri hálfleik.
Maður leikins: ekki var létt að velja mann leiksins því fram að 40 mínútu var engin sem skaraði fram úr, tók ábyrgð eða þorði að taka af skarið í sókninni. En á 40 mínútu í leiknum kom Lilja Sif Þórisdóttir og gerði alla þessa hluti mjög vel og vel ég hana mann leiksins fyrir að taka ábyrgð og stíga upp fyrir liðið þegar þess þurfti. |