 Finnur setti 7 mörk í dag

| | 16. nóvember 2006 - SÁ skrifar
Finnur Jóhanns: Kenni ferðaþreytunni um!Eftir leikinn við ÍR2 tók heimasíðan viðtal við hinn eina sanna Finn Jóhannsson sem allir handknattleiksunnendur ættu að kannast við. Finnur, sem á góðan kvikmyndaferil að baki, átti stórleik og setti 7 mörk í leiknum. Við skulum skoða hvað Finnur hafði að segja.
SÁ: Bikarkeppnin með ÍR2 í vetur, var þetta betra en Blossi um árið? Finnur: Já, þetta er málið. Ég er ótrúlega svekktur samt að detta út. Ég vil meina að við höfum selt okkur alltof ódýrt en svona er sportið.
SÁ: Varstu sáttur með viðtökurnar sem Blossi fékk á sínum tíma? Finnur: Veistu það að ég bara man ekki hvernig það var! En Blossi, það er cult í dag.
SÁ: Varstu sáttur með spilamennskuna hjá ykkur í dag? Finnur: Já, já. Við vorum alveg sáttir með spilamennskuna. Við héldum í við þá í seinni hálfleik. Ég vil kenna þessu um lélegum undirbúningi og basically ferðalaginu hingað. Menn voru að mæta alltof seint í leik og það er ferðaþreytan sem ég vil kenna um.
SÁ: Þannig að undir eðlilegum kringumstæðum ættuð þið þá að vinna? Finnur: Undir eðlilegum kringumstæðum hefðum við trúlega unnið!
SÁ: Þið verðið þá bara að einblína á utandeildina í vetur? Finnur: Það er bara stefnt á sigur í deildinni og ekkert annað.
Við þökkum Finni kærlega fyrir en ekki væri leiðinlegt að sjá hann aftur á hvíta tjaldinu. |