Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

2. flokkur leikur á Akureyri á morgun

17. nóvember 2006 - SÁ skrifar 

2. flokkur spilar á morgun

2. flokkur Akureyrar leikur á morgun sinn þriðja leik í deildinni í vetur en líkt og meistaraflokkurinn fær liðið HK í heimsókn. Leikurinn fer fram klukkan 16:00 í Íþróttahöllinni. Gaman verður að sjá liðið í fyrsta skipti hér á Akureyri en 2. flokkur er með hörkulið þegar liðið spilar eins og það á að sér. Eins og kunnugt er vann liðið fyrstu tvo leiki sína í vetur fyrir skömmu í Reykjavík. HK hefur aftur á móti tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í vetur mjög tæpt.

Akureyri - HK í 2. flokki - Laugardaginn 18. nóvember klukkan 16:00.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson