 Siffi var ótrúlegur og skoraði 9 mörk Mynd: Fram.is
| | 23. nóvember 2006 - ÁS skrifar
Sigfús Páll: "Akureyringar alltof seinir til baka"Eftir leik Íslandsmeistara Fram og Akureyrar Handboltafélags ákvað heimasíðan að taka Sigfús Pál, oftast nefndur Siffi, í viðtal. Drengurinn reyndist leikmönnum Akureyrar gríðarlega erfiður og setti hann hvorki fleiri né færri en 9 mörk í leiknum áður en hann var svo tekinn úr umferð nánast allan seinni hálfleikinn.
ÁS: Hvernig fannst þér leikurinn? Sigfús: Mér fannst fyrri hálfleikurinn mjög góður, við vorum að láta boltann ganga mjög vel og létum þessa stóru og stæðilegu varnarmenn Akureyrar ekki negla okkur. Við fengum því góð færi sem við nýttum vel.
ÁS: Hvernig lýst þér á að mæta Akureyri á Akureyri í Bikarnum? Sigfús: Það verður gríðarlega erfiður leikur fyrir okkur sérstaklega þegar má búast við fjölda áhorfenda. Maður er búinn að heyra að það hafi verið mætt vel síðast og þeir eru alltaf mjög sterkir á sínum heimavelli. Ég man allavega ekki eftir að hafa unnið fyrir norðan.
ÁS: Hvernig finnst þér spilamennska Akureyrar vera? Sigfús: Mér finnst vörnin gríðarlega sterk þegar þeir ná að stilla upp. Þeir eru hinsvegar alltof seinir til baka, við náum að skora fullt af mörkum eftir hraðaupphlaup og eftir seinni bylgju. Það er eitthvað sem þarf að laga sem og auðvitað sóknarleikurinn. Mér finnst sóknin ekki vera nógu skipulögð og þeir eru ekki að skapa nein færi.
ÁS: Nú ert þú að leika ákaflega vel um þessar mundir, hvernig ert þú líkamlega séð? Sigfús: Mér finnst ég alltaf geta komið mér í betra form en þetta er allt að koma hjá mér. Þarf að laga skotin aðeins og svo þarf ég að fá að spila vörnina alveg 100%. Þá verð ég orðinn gríðarlega sáttur.
Heimasíðan þakkar Sigfúsi kærlega fyrir viðtalið og bendir lesendum á leikinn gegn Val í KA-Heimilinu á sunnudaginn sem og Bikarslag Akureyrar og Fram sem verður væntanlega 6. desember. |