 Aigars Lazdins
| | 26. nóvember 2006 - SÁ skrifar
Aigars: Unnum útaf áhorfendumAigars Lazdins spilaði afar stórt hlutverk í sigri Akureyarar á toppliði Vals, þá sérstaklega í lokinn. Aigars virðist alltaf vera bestur á "peningamínútunum" en þegar mest á reynir virðist seiglan einungis verða meiri.
SÁ: Aigars, hvernig var þessi leikur? Aigars: Leikurinn var mjög erfiður. Ég held að við vinnum leikinn á vörninni. Við spilum mjög góða vörn. Á móti HK skoruðu þeir 22 en unnu og í dag skorar Valur 22 og við náum að vinna. Við berjumst í vörninni og erum að hjálpa hvorum öðrum.
SÁ: Þú sjálfur virðist alltaf vera bestur seinustu 10 mínúturnar, er úthaldið þitt svona gott? Aigars: Nei, þetta er bara heppni.
SÁ: Áhorfendurnir, skiptu þeir miklu í dag? Aigars: Ég held að við höfum unnið þennan leik út af áhorfendunum í dag. Í dag voru liðin mjög jöfn og við vinnum útaf fólkinu sem hjálpar okkur.
SÁ: Ertu sáttur við spilamennsku liðsins til þessa? Aigars: Já mjög ánægður. Við berjumst og þú getur alltaf trúað á manninn sem er næst þér. Við getum líka skipt mikið inná ef einhver er þreyttur og það þurfa ekki allir að spila alltaf 60 mínútur,
SÁ: Heldur þú að Akureyrarliðið geti orðið mun betra en það er nú? Aigars: Já, það er alltaf eitthvað hægt að bæta. Við þurfum að bæta okkur í sókninni og kannski þegar Goran er orðinn 100% aftur er hægt að nota hann fyrir utan en það er erfitt að hafa rétthentan mann í hægri skyttunni. |