 Umfjöllun N4 um handknattleik er til fyrirmyndar en þeir ætla að sýna svona frá öllum heimaleikjum Akureyrar sem eftir er
| | 27. nóvember 2006 - SÁ skrifar
Frábært hjá N4 (uppfært)Sjónvarp Norðurlands, N4, er svo sannarlega að gera frábæra hluti þessa dagana í umfjöllun sinni um handknattleik. Eftir leik Akureyrar við HK fyrir um viku síðan var stöðin með frábæra umfjöllun, viðtöl og fleira. Í dag gerðu þeir svo enn betur og greindu óaðfinnanlega frá sigri Akureyrar á toppliði Val. N4 sýndi flest öll ef ekki öll mörk leiksins, tóku viðtöl og gerðu leiknum eins góð skil og mögulegt er.
Ótrúlegt umfjöllunarleysi hefur verið í íslenskum sjónvarpsstöðvum um þennan leik en það er ekki á hverjum degi sem topplið deildarinnar er sigrað. Aðrar sjónvarpsstöðvar mættu taka N4 sér til fyrirmyndar í umfjöllun um handknattleik og bara íþróttir almennt því þarna er ekki bara sýnt einhver 2-3 mörk og svo farið í eitthvað annað.
Heimasíðan hvetur alla til að fylgjast vel með málunum á N4 en þessi sjónvarpsstöð hefur verið í mikilli sókn að undanförnu og hvað varðar handknattleik er hún til hreinnar fyrirmyndar. Fyrir þá sem misstu af þessari umfjöllun verður þetta endursýnt hjá þeim eitthvað.
Heimasíðan hefur fengið það staðfest að N4 ætlar að sýna svona frá öllum heimaleikjum Akureyrar sem eftir eru í vetur. Svo sannarlega frábær tíðindi það fyrir íþróttaunnendur og afar gott framtak hjá þeim. |