 Stelpurnar töpuðu báðum leikjum sínum gegn Fylki
| | 28. nóvember 2006 - ÁS skrifar
Unglingaflokkur kvenna: Tvö töp gegn FylkiUnglingaflokkur kvenna lék tvo leiki um helgina og báða gegn Fylki. Leikirnir fóru fram í KA-Heimilinu, sá fyrri á laugardeginum var í deildarkeppninni en sá síðari sem var á sunnudeginum var í Bikarkeppninni. Leikirnir töpuðust báðir og eru stelpurnar því dottnar útúr Bikarkeppninni.
Deildarleikurinn Leikurinn á laugardeginum var eins og áður kom fram í deildinni og fyrir leikinn voru liðin jöfn með 4 stig en Akureyri hafði leikið einum leik meira. Í fyrri hálfleik mátti vart sjá hvort liðið var sterkara en staðan var jöfn í hálfleik 11-11. Seinni hálfleikurinn var daprari af hálfu Akureyrar og Fylkir komst framúr og vann á endanum öruggan 5 marka sigur, 21-26. Akureyri er í 5. sæti í deildinni eins og er eftir 5 leiki en 7 lið eru í deildinni og leikin verður þreföld umferð.
Bikarleikurinn Síðari leikurinn var liður í 16-liða úrslitum Bikarkeppninnar í Unglingaflokki og voru stelpurnar staðráðnar í að ná að hefna fyrir tapið deginum áður. Stelpurnar byrjuðu leikinn ákaflega vel og voru mun betri en Fylkisstelpur í fyrri hálfleik. Staðan var 11-8 í hálfleik og lofaði spilamennskan góðu. Í seinni hálfleik náðu stelpurnar ekki að halda sama dampi og Fylkisstúlkur jöfnuðu leikinn og sigu svo framúr. Fylkir vann leikinn að lokum 21-23 og slógu þar með Akureyri Handboltafélag útúr Bikarnum.
Stelpurnar spila næst um helgina en þær fara suður og leika gegn Fylki á laugardeginum og á sunnudeginum leika þær gegn gríðarlega öflugu liði Gróttu. Stelpurnar eru væntanlega staðráðnar í því að sigra Fylki í fyrri leiknum en Grótta er væntanlega með sterkasta liðið í deildinni. |