 Rúnar er klár fyrir morgun daginn!
| | 5. desember 2006 - SÁ skrifar
Rúnar: Stærsti leikurinn hingað til"Menn þurfa að hafa trú á verkefninu og þá hefst þetta" sagði Rúnar Sigtryggsson meðal annars, og lagði áherslu á, í viðtali við heimasíðuna. Akureyri tekur sem kunnugt er á móti Fram á morgun í einum stærsta leik tímabilsins. Með sigri í þessum leik er Akureyri einungis einum sigri frá Bikarúrslitaleiknum sjálfum.
SÁ: Rúnar, það hefur verið margt rætt og ritað um leikinn gegn ÍR á sunnudaginn. Heldur þú að Akureyri nái að rífa sig upp fyrir Framarana á morgun? Rúnar: Já, þetta var eins og maður var hræddur fyrir leikinn að þetta yrði. Þetta var leikur á milli tveggja stórra leikja og menn voru bara ekki með hugann við hann en ég held að menn nái að rífa sig upp. Þetta er stærsti leikurinn hingað til!
SÁ: Við erum komnir í 8-liða úrslit einungis tveimur sigrum frá úrslitaleiknum sjálfum. Heldur þú að menn átti sig á því í hve góðri stöðu liðið er? Rúnar: Já, menn gera sér alveg grein fyrir því. Það háði okkur á sunnudaginn að hausinn var bara ekki í lagi í hverjum einasta manni. Menn voru farnir að einbeita sér að þessum leik of snemma, því miður. En maður finnur það á æfingum að það er verið að taka á því fyrir komandi átök.
SÁ: Hvað þarf Akureyri að ná fram í leik sínum til að vinna á morgun? Rúnar: Spila okkar leik.
SÁ: Framararnir, hvað hefur þú að segja um þá? Rúnar: Þeir spila taktískt, þeir eru mjög hraðir fram á við. Við þurfum bara að mæta ákveðnir til leiks. Menn þurfa að hafa trú á verkefninu og þá hefst þetta.
SÁ: Ertu bjartsýnn? Rúnar: Já.
Við þökkum Rúnari kærlega fyrir og hvetjum enn og aftur alla til að mæta á morgun. Þeir verða ekki mikið stærri en þetta leikirnir!
 |