 Hörður Fannar var öflugur gegn Fram
| | 7. desember 2006 - SÁ skrifar
Hörður Fannar svekktur með tapiðHeimasíðan talaði við Hörð Fannar Sigþórsson eftir leikinn gegn Fram en Hörður átti mjög fínan leik og skoraði 6 mörk, það nægði bara ekki til. Við ræddum við Hörð um leikinn og komandi átök. Kíkjum á hvað Höddi hafði að segja.
SÁ: Hörður, hvað viltu segja okkur um leikinn gegn Fram? Hörður: Það var gríðarlega svekkjandi að tapa þessum leik. Við gerðum nánast allt sem við lögðum upp með fyrir leikinn og þetta var smá partur óheppni líka.
SÁ: Þið eruð kannski sjálfum ykkur verstir í þessum leik? Hörður: Já, það koma þarna tveir kaflar sem við erum eiginlega með leikinn í hendi okkar, vorum komnir tveimur mörkum yfir. Svo klikkum við nokkrum færum sem hefðu getað byggt þetta ennþá meira upp.
SÁ: Hvað varstu ánægðastur með í dag hjá mannskapnum? Hörður: Þegar við náðum að stilla upp í vörnina var hún gríðarlega sterk. Sóknarleikurinn er allur að koma til finnst mér og það er komið miklu meira flot á boltann eftir að Goran kemur inn í þetta í skyttuna. Sóknarleikurinn var bara miklu betri en í undanförnum leikjum.
SÁ: Gísli og Hafsteinn koma hingað og eiga áhugaverðan leik, hvað fannst þér um þá? Hörður: Það voru alls ekkert þeir sem fóru með leikinn. Það er náttúrulega dýrt þegar þeir eru að dæma tvær mínútur fyrir lítið því það þýðir yfirleitt töpuð mörk.
SÁ: Það eru svo Haukar sem koma í heimsókn á sunnudaginn, hvernig leggst það í þig? Hörður: Það leggst bara vel í mig. Nú verðum við að fara að rífa okkur upp af rassgatinu og sýna virkilega hvað við getum. Við verðum að klára þessa tvo leiki sem eftir eru í deildinni fyrir jól á fullum krafti.
SÁ: Þið getið núna einbeitt ykkur að deildinni. Telur þú að liðið eigi að geta barist á toppnum í lok tímabils? Hörður: Ef við náum að klára þessa tvo leiki hérna á Akureyri fyrir jól þá ættum við að vera í ágætis málum.
Við þökkum Herði Fannari fyrir og minnum á næsta heimaleik sem er næsta sunnudag klukkan 16:00 við einmitt Hauka. |