 Akureyri tekur á móti Haukum á morgun klukkan 16:00
| | 9. desember 2006 - ÁS skrifar
1 dagur í leik: Hvernig standa Haukar?Á morgun munu Deildarbikarmeistarar Hauka koma í KA-Heimilið og leika gegn Akureyri Handboltafélagi. Leikurinn mun hefjast klukkan 16:00 og þarf Akureyri allan stuðning sem í boði er til að leggja öflugt lið Hauka sem er komið í gang. Akureyri hefur tapað tveimur leikjum í röð, ÍR í deild og Fram í bikar, og því þarf liðið að sigra og komast aftur í gang.
Fyrri leikur liðanna Liðin mættust að Ásvöllum í 3. umferð DHL-Deildar og eftir að hafa verið undir nær allan leikinn, Akureyri náði 7 sinnum að jafna leikinn en komst aldrei yfir, þá jöfnuðu Akureyringar leikinn á síðustu mínútunni og náðu 34-34 jafntefli. Staðan var 18-15 fyrir Hauka í hálfleik og Haukar leiddu 29-24 þegar seinni hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Rúnar Sigtryggsson, Hörður Fannar Sigþórsson og Andri Stefan fengu allir beint rautt spjald undir lok leiksins en það var mikil harka í leiknum.
Deildarleikirnir til þessa Haukar
| Dags. | Mótherjar | Staðsetning | Úrslit | | 27. sept | ÍR | Austurberg | 36-30 (tap) | | 4. okt | Fram | Safamýri | 29-30 (sigur) | | 15. okt | Akureyri | Ásvellir | 34-34 | | 22. okt | Fylkir | Fylkishöll | 23-23 | | 1. nóv | Stjarnan | Ásvellir | 29-33 (tap) | | 8. nóv | HK | Digranes | 26-21 (tap) | | 18. nóv | Valur | Ásvellir | 29-30 (tap) | | 26. nóv | ÍR | Ásvellir | 31-29 (sigur) | | 3. des | Fram | Ásvellir | 31-28 (sigur) |
Akureyri
| Dags. | Mótherjar | Staðsetning | Úrslit | | 30. sept | Akureyri | Laugardalshöll | 26-22 (tap) | | 8. okt | ÍR | KA-Heimilið | 33-24 (sigur) | | 15. okt | Haukar | Ásvellir | 34-34 | | 6. nóv | Fylkir | KA-Heimilið | 30-27 (sigur) | | 12. nóv | Stjarnan | Ásgarður | 22-23 (sigur) | | 19. nóv | HK | KA-Heimilið | 20-22 (tap) | | 22. nóv | Fram | Safamýri | 32-29 (tap) | | 26. nóv | Valur | KA-Heimilið | 25-22 (sigur) | | 3. des | ÍR | Austurberg | 34-28 (tap) |
Eins og sjá má hafa Haukar verið mjög sveiflukenndir. Þeir hinsvegar hafa unnið Íslandsmeistara Fram í báðum leikjum liðanna og virðist vera að komast í gang. Haukar unnu topplið Vals í Bikarkeppninni 27-24 en nokkrum dögum eftir unnu Valsmenn rimmu liðanna í deildinni. Akureyri þarf að rífa sig upp og ná sigri gegn Haukum enda tapaði liðið slæmum tveim stigum gegn ÍR á dögunum.
Staðan í deildinni
| Nr. | Félag | Leikir | U | J | T | Mörk | Hlutfall | Stig | | 1. | Valur | 9 | 7 | 0 | 2 | 250 : 231 | 19 | 14 | | 2. | HK | 9 | 6 | 1 | 2 | 236 : 220 | 16 | 13 | | 3. | Fram | 9 | 5 | 1 | 3 | 271 : 246 | 25 | 11 | | 4. | Akureyri | 9 | 4 | 1 | 4 | 244 : 243 | 1 | 9 | | 5. | Stjarnan | 9 | 4 | 0 | 5 | 239 : 246 | -7 | 8 | | 6. | Haukar | 9 | 3 | 2 | 4 | 258 : 268 | -10 | 8 | | 7. | Fylkir | 9 | 2 | 1 | 6 | 240 : 260 | -20 | 5 | | 8. | ÍR | 9 | 2 | 0 | 7 | 250 : 274 | -24 | 4 | Ef Akureyri tapar stigum gegn Haukum er liðið komið í slæma stöðu, það myndi missa toppliðin enn lengra frá sér og vera komið alvarlega í neðri pakkann.
Heimasíðan hvetur alla til að mæta í KA-Heimilið á morgun klukkan 16:00, það verður flottur handboltaleikur í boði þar sem ekkert verður gefið eftir. Mikil harka var í fyrri leik liðanna og það má svo sannarlega búast við því á morgun að hvorugt liðið gefi eitthvað eftir.
Akureyri - Haukar, KA-Heimilið 10. desember 2006 klukkan 16:00 |