 Tekst Rúnari og hans mönnum að leggja Fram í þriðju tilraun?
| | 11. desember 2006 - ÁS skrifar
Akureyri tekur á móti Fram á laugardaginnSíðasti leikur Akureyrar fyrir áramót sem er gegn Fram verður í KA-Heimilinu á laugardaginn 16. desember. Leikurinn átti upphaflega að vera á sunnudaginn en allir leikirnir í 11. umferð DHL-Deildar voru færðir yfir á laugardag. Heimasíðan hvetur fólk til að hafa leikinn í huga þessa vikuna og mæta svo á leikinn á laugardaginn.
Þetta verður þriðji leikur liðanna á rétt rúmlega 20 dögum, Framarar hafa unnið báða leikina til þessa en Akureyri hefur verið að bæta leik sinn mikið upp á síðkastið og hef ég fulla trú á því að liðið leggji Framara að velli á laugardaginn.
Akureyri - Fram, KA-Heimilið 16. desember klukkan 16:00 |