 Sveinbjörn og Ásbjörn eru á landsliðsæfingum ásamt Hákoni

| | 20. desember 2006 - SH skrifarÞrír Akureyringar í U-19 landsliði ÍslandsÞrír leikmenn Akureyrar voru valdir í landslið 19 ára og yngri sem tekur þátt í árlegu móti í Þýskalandi á milli jóla og nýárs, Hela Cup. Það eru þeir Sveinbjörn Pétursson markvörður og útileikmennirnir Ásbjörn Friðriksson og Hákon Stefánsson. Liðið hóf æfingar í gær í Reykjavík en mótið fer fram 27. til 29. desember.
Fjórði Akureyringurinn sem að öllu eðlilegu hefði verið í hópnum, Heiðar Þór Aðalsteinsson, getur ekki verið með að þessu sinni vegna bakmeiðslanna sem hafa hrjáð hann undanfarið. Heiðar er nýbyrjaður að leika á ný með liði Akureyrar, en þar sem landsliðið æfir stíft alla þessa viku og æfir daglega í Þýskalandi auk þess að leika þrjá daga í röð, var það sameiginleg ákvörðun hans og þjálfarans, Heimis Ríkharðssonar, að Heiðar Þór fengi frí að þessu sinni.
Landsliðið keppir á milli jóla og nýárs á Hela Cup mótinu í Þýskalandi. 27. desember klukkan 18:00 mætir liðið Þjóðverjum og daginn eftir er leikur við Pólverja klukkan 13:40 og loks leikið við Sviss klukkan 16:00. Þann 29. desember verður svo krossspil og úrslitaleikir. Heimasíðan óskar drengjunum til hamingju með landsliðssætin. |