Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ásbjörn, Sveinbjörn og Hákon fengu silfur á Hela Cup

29. desember 2006 - ÁS skrifar 

U-19: 8 marka tap gegn Þjóðverjum í úrslitum

Landslið Íslands skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði í kvöld fyrir Þjóðverjum í úrslitaleik Hela Cup. Hela Cup er haldið í Þýskalandi og hefur Ísland aldrei áður komist í úrslitaleik mótsins en þetta er í 13. sinn sem Ísland tekur þátt á mótinu.

Varnarleikurinn sem Íslenska liðið hafði verið að spila svo vel á mótinu stóð því miður ekki eins vel í kvöld og í undanförnum leikjum og var staðan 19-14 fyrir Þýskaland í hálfleik. Lokatölur voru svo 32-24 fyrir Þýskaland, strákarnir eiga mikið hrós skilið fyrir spilamennsku sína á mótinu en þetta er besti árangur Íslands á Hela Cup frá upphafi.

Sveinbjörn Pétursson varði 12 bolta í markinu og Ásbjörn Friðriksson skoraði 2 mörk. Hákon Stefánsson náði ekki að setja mark sitt á leikinn.

Heimasíðan óskar Sveinbirni, Ásbirni, Hákoni og liðsfélögum þeirra hjartanlega til hamingju með árangurinn sem er glæsilegur.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson