Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Alltaf eitthvað nýtt á síðunni

16. janúar 2007 - ÁS skrifar 

Nýjung á síðunni - leikmannasíður

Nú er kominn í loftið nýr liður hér á síðunni sem eru leikmannasíður meistaraflokka Akureyrar Handboltafélags. Með því að smella á tenglana Leikmenn karlaliðs eða Leikmenn kvennaliðs hér efst á síðunni, fæst upp listi yfir þá leikmenn sem komið hafa við sögu á leikskýrslum þessa tímabils. Með því að smella á nafn viðkomandi leikmanns fást nánari upplýsingar um hann, samandregin tölfræði úr deildar- og bikaleikjum tímabilsins svo og nokkrar myndir úr myndasafninu þar sem viðkomandi leikmaður kemur við sögu. Varla þarf að taka fram að langflestar myndanna koma frá hirðljósmyndara síðunnar, Þóri Tryggvasyni.

Á næstunni verður unnið að því að fjölga myndum og bæta inn frekari upplýsingum varðandi leikmennina.

Athugið að þegar skoðuð er tölfræði einstakra leikja þá er nafn leikmannsins einnig tengill í síðu viðkomandi leikmanns.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson