Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það eru frábærar fregnir að Hörður Fannar sé samningsbundinn Akureyri tvö ár í viðbót

16. febrúar 2007 - SÁ skrifar 

Hörður Fannar skrifar undir tveggja ára samning

Línumaðurinn sterki Hörður Fannar Sigþórsson var að skrifa undir tveggja ára samning við Akureyri Handboltafélag. Þetta eru frábærar fregnir fyrir Akureyri því Hörður hefur verið að leika mjög vel með liðinu í vetur. Hörður, sem er 24 ára gamall, er leikmaður í mikilli framför og hefur hann á seinustu árum stórbætt sig sem handboltamaður. Hann er fanta varnarmaður og getur verið hreint óstöðvandi í sókninni. Ljóst er að ef Hörður heldur áfram á sama krafti er hann farinn að banka all verulega á landsliðsdyrnar á næstunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson