Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Andri fer í sólina á Spáni og nær vonandi að vinna nokkra leiki í leiðinni

28. mars 2007 - SÁ skrifar 

Andri valinn í U-21 landsliðið

Andri Snær Stefánsson, hinn eitilharði hornamaður, hefur verið valinn í lokahóp landsliðs Íslands skipað leikmönnum fæddum 1986 og síðar. Þessi landsliðshópur Íslands fer til Spánar og spilar í undankeppni fyrir HM núna um páskana. Liðið mun leika þrjá gríðarlega erfiða leiki eða við Austurríki, Spán og Sviss.

Aðspurður sagðist Andri vera spenntur fyrir þessu verkefni Íslands. Hann vildi meina að þrátt fyrir erfiðan riðil væri möguleikar Íslands þónokkrir og var hann bjartsýnn fyrir því að Ísland næði að standa sig vel í þessum leikjum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson