Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stelpurnar þurfa að spila hörkuvörn í dag til að eiga möguleika

31. mars 2007 - SMS skrifar 

Stjarnan - Akureyri, leikur í dag

Í dag mætast í Ásgarði kl 16:00 Akureyri og Stjarnan. Þessi leikur er afar mikilvægur fyrir Stjörnuna því ef þær ná að sigra í dag þá verða þær svo mikið sem íslandsmeistarar. Margar góðar stelpur eru í Stjörnuhópnum svo sem Rakel Dögg Bragadóttir sem hefur skorað ansi mikið í vetur og skipt miklu máli fyrir topp lið Stjörnunnar.

Akureyri tapaði með 3 mörkum gegn ÍBV í síðasta leik í eyjum og þessi leikur verður ekki léttari. Akureyri og Stjarnan hafa mæst tvisvar í vetur, fyrri leikurinn fór 36-19 Stjörnunni i vil og seinni fór 34-16.

Engin spurning að þetta verður erfiður útileikur hjá Akureyri í dag en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson