 Risaleikur í dag, fylgist með
| | 15. apríl 2007 - ÁS skrifar
Bein Lýsing: Stjarnan - AkureyriAkureyri Handboltafélag leikur í dag hreinan úrslitaleik við Stjörnuna um hvort liðið fer í Deildarbikarinn. Það verður virkilega gaman að sjá hvernig liðin koma til leiks en liðið sem fer með sigur af hólmi tryggir sér sæti í Deildarbikarnum, leikurinn hefst klukkan 16:00. Heimasíðan býður upp á Beina Textalýsingu frá leiknum en hvetur þá sem geta að fara í Ásgarð og hvetja liðið til sigurs. Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.
Smellið hér til að opna Beina Lýsingu
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 16:00 en við hvetjum alla til að fylgjast vel með. |