Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stelpurnar fá hrós fyrir fína frammistöðu í vetur

27. apríl 2007 - ÁS skrifar 

Unglingaflokkur kvenna: 4 marka tap, tímabilið búið

Unglingaflokkur kvenna lék í gær heimaleik við Fram í 8-liða úrslitum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Eftir mikla spennu framan af kláraði Fram leikinn og vann á endanum 4 marka sigur. Tímabilinu er því lokið hjá stelpunum en þær enduðu í 4. sæti í deildinni.

Mikil spenna var í leiknum í fyrri hálfleik og mátti varla sjá hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi. Bæði lið eru vel mönnuð og var baráttan í fyrirrúmi. Hálfleikstölur voru 14-14. Í síðari hálfleik var spennan áfram en Fram virkaði þó líklegra til sigurs og að lokum sigruðu Framstelpur 25-29 sigur og komast því áfram í undanúrslit á kostnað Akureyrar.

Tímabilinu er því lokið en stelpurnar eiga hrós skilið fyrir fína frammistöðu í vetur. Þær náðu heimaleikjarétt í 8-liða úrslitum og með smá heppni væri liðið komið í undanúrslit.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson