 Halldór Jóhann Sigfússon og Andrius Stelmokas

| | 17. maí 2007 - ÁS skrifar
Fer Halldór Jóhann í sterkustu deild heims?Halldór Jóhann Sigfússon leikstjórnandinn sterki sem leikur úti međ Tusem Essen getur á laugardaginn tryggt sér sćti í sterkustu deild í heimi. Essen fékk Dóra fyrir síđasta tímabil og keypti hann frá KA en ţá var liđiđ í neđstu deild eftir ađ hafa orđiđ gjaldţrota. Dóri hefur leikiđ stórt hlutverk í endurbyggingu félagsins en liđiđ sigrađi neđstu deildina í fyrra og hefur veriđ efst í 2. deild suđur í allan vetur.
Á laugardaginn fer fram síđasta umferđin í deildinni og á liđ Essen eftir gríđarlega mikilvćgan leik. Liđiđ mun mćta Bayer Dormagen á útivelli en liđin eru jöfn međ 51 stig fyrir lokaumferđina. Fyrri leikur liđanna í vetur endađi međ 28-28 jafntefli á heimavelli Essen. Ađeins efsta liđiđ í deildinni mun fara beint upp og til ađ ţađ gerist ţarf Essen ađ sigra eđa gera jafntefli međ ţví ađ skora fleiri en 28 mörk.
Ţađ vćri frábćrt fyrir Dóra og félaga í Essen ađ komast upp í Bundesliguna en hún er sterkasta deild í heimi um ţessar mundir en ţađ sést best á ţví ađ ţýsk liđ unnu í vetur allar ţrjár Evrópukeppnirnar. Halldór hefur skorađ 89 deildarmörk í 32 leikjum og gert 29 úr vítum.
Eins og fyrr kom fram fer leikurinn fram á laugardaginn á heimavelli Dormagen.
Ţá er fyrrum leikmađur KA og Ţórs, Andrius Stelmokas, sem nú leikur međ Füchse Berlin á leiđinni í Bundesliguna. Liđ hans Füchse Berlin hefur haft gríđarlega yfirburđi í 2. deild Norđur og hefur einungis tapađ tveim leikjum í vetur og alls 4 stigum. Andrius lék áđur međ Göppingen í Bundesligunni en fór til Füchse Berlin fyrir tímabiliđ og hefur hann leikiđ ákaflega vel fyrir liđiđ.
Andrius hefur skorađ 161 mark í 33 leikjum og ekkert úr víti. Hann er 15 markahćsti mađur 2. deildar Norđur og er annar markahćsti mađur Füchse Berlin. Ţađ verđur virkilega gaman ađ sjá Andrius aftur í bestu deild heims á nćsta tímabili en hann er á góđum samning hjá Berlínarliđinu, en átti einmitt ađ vera mađurinn sem ađ átti ađ koma Füchse Berlin upp um deild. |